Month: April 2010

  • Skötuselskvóti – umsóknafrestur rennur út 26. apríl

    Vakin er athygli á að þeir sem hyggjast sækja um skötuselskvóta, samanber reglugerð sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytisins, verða að hafa skilað inn umsóknum til Fiskistofu eigi síðar en 26. apríl nk.    Til ráðstöfunar á yfirstandandi fiskveiðiári eru 500 tonn sem skipt verður milli umsækjanda á grundvelli umsókna að hámarki 5 tonn á hvern bát.    Úthlutun…

  • LS vill breytingar á frumvarpi til laga um strandveiðar

    Eins og fram hefur komið er strandveiðifrumvarpið nú til umræðu á Alþingi.  Við frestun þinghalds 25. mars sl. stóð yfir 2. umræða um málefnið.  Gera má ráð fyrir að málið komist aftur á dagskrá á næstu dögum, eigi strandveiðar að hefjast 1. maí nk. eins og frumvarpið gerir ráð fyrir.   Í umsögn LS til…

  • Verkalýðshreyfingin ályktar um aukinn þorskkvóta

    LS hafa borist ábendingar um að auk Framsýnar á Húsavík og Verkalýðsfélags Snæfellinga hafi Eining-Iðja og Vekalýðsfélag Vestfjarða einnig ályktað um auknar veiðiheimildir.     Í lok nóvember sl. ályktuðu félagslegir trúnaðarmenn Einingar-Iðju, sem starfa í fiskvinnslu á Eyjafjarðarsvæðinu.  Í ályktuninni er m.a. skorað á stjórnvöld að auka kvóta nú þegar.   Ályktunin í heild…

  • Trúlega heimsmet í grásleppuveiði!

    Mitt í öllum haugnum af neikvæðum og leiðinlegum fréttum leynast demantar.   Frá Akranesi bárust þær frábæru fréttir að Eiður Ólafsson, skipstjóri og Kristófer Jónsson háseti á bátnum Ísak AK 67 lönduðu í gær 35 tunnum, eða á fimmta tonn af hrognum úr sjó.   Þessi afli er algert einsdæmi og eftir því sem næst…

  • LS mótmælir harðlega frumvarpi samgönguráðherra um lögskráningu

    Enn eina ferðina fjallar alþingi um breytingar á lögum um lögskráningu.  Samgönguráðherra leggur nú frumvarpið fram öðru sinni.  Við gerð þess var ekki haft samráð við LS, þrátt fyrir að meginefni þess sé að skylda félagsmenn LS til lögskráningar.  Þá vekur það eftirtekt að ekki er einu orði minnst á það í frumvarpinu í hvers…

  • Enn fjölgar á grásleppunni

    Alls hafa nú 214 bátar hafið grásleppuveiðar.  Það er rúmum þriðjungi fleiri en á sama tíma í fyrra.   Flest leyfin eru á svæði E (Skagatá að Fonti) 88.     Almennt bera grásleppukarlar sig illa þegar spurt er um veiðarnar.  Minni en í fyrra, treg veiði.  Flestir kenna veðrinu um en frá því veiðarnar hófust fyrir…

  • Ákæra lögreglustjórans á Snæfellsnesi á hendur trillukarli ekki dómtæk

    Héraðsdómur Vesturlands hefur vísað frá dómi ákæru lögreglustjórans á Snæfellsnesi á hendur Jóhanni Rúnari Kristinssyni.  Lögreglustjórinn kærði Jóhann Rúnar, sem er skipstjóri og útgerðarmaður Særifs SH, fyrir að hafa brotið sjómannalög með því að vera lengur en 14 klst. í róðri.     Í ákæruskjali segir að málið sé höfðað gegn ákærða „fyrir brot á sjómannalögum“…

  • Reykingar alfarið bannaðar um borð í fiskiskipum og bátum

    Rétt áður en páskar skullu á, gaf sjávarútvegsráðuneytið út nokkrar reglugerðir sem vöktu talsverða athygli, m.a. varðandi skötusel og makrílveiðar.  Minna fór fyrir reglugerð sem heilbrigðisráðuneytið gaf út sl. miðvikudag varðandi reykingar um borð í fiskiskipum og bátum. Reglugerðin hljóðar svo: 1.gr. Markmið laga um tóbaksvarnir er að draga úr heilsutjóni og dauðsföllum af völdum…