Month: June 2010

  • Grásleppuvertíðin bregst fjórða árið í röð á Nýfundnalandi

    Nú liggur fyrir að grásleppuvertíðin á Nýfundnalandi mun ekki skila miklu árið 2010.  Samkvæmt heimildum LS verður veiðin þar ekki mikið meiri en 800 tunnur.  Það er næst lakasta veiði frá upphafi atvinnuveiða þar í landi, en lakasta árið var í fyrra, 466 tunnur.   Það er óhætt að segja að Bleik sé brugðið.  Nýfundnaland…

  • Ákall úr Njarðvík

    Fyrir fáeinum dögum birtist í Morgunblaðinu eftirfarandi grein eftir Sæmund Einarsson, smábátasjómann úr Njarðvík: „Reykjanes, félag smábátaeigenda á Suðurnesjum, hefur samþykkt tillögu um að fara þess á leit við sjávarútvegsráðuneytið að banna togveiðar á viðkvæmu hrygningarsvæði þorsks norðvestur af Sandgerði.  Þessum tilmælum hefur verið beint til ráðuneytisins í yfir tuttugu ár án árangurs. Í sjávarútvegsráðuneytinu…

  • Strandveiðar – metfjöldi útgefinna leyfa

    Útgefin strandveiðileyfi eru nú orðin fleiri en í fyrra.  Fiskistofa hefur gefið út 625 leyfi en á upphafsári strandveiða voru þau 595.  Heildarafli strandveiðibáta var í gær kominn yfir tvöþúsund tonn og höfðu bátarnir farið í alls 1-7-3 sjóferðir eftir þeim afla.  Meðalafli í róðri er því 539 kg. Helmingur heildaraflans hefur fiskast á svæði…

  • Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra ítrekar andstöðu gegn inngöngu í ESB

      Jón Bjarnason sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra hélt ræðu á sjómannadeginum í Reykjavík þar sem hann ávarpaði sjómenn.  Meðal þess sem ráðherrann kom inn á var eftirfarandi: ESB „Ég styð ekki inngöngu í ESB frekar en hagsmunasamtökin í sjávarútvegi“   Bætt nýting – allan afla að landi án undantekninga „Það er mín eindregna skoðun að koma…

  • Til hamingju með daginn!

    Landssamband smábátaeigenda óskar félagsmönnum, sem og öllum sjófarendum og landsmönnum til hamingju með sjómannadaginn. Gleðilega hátíð.

  • Veiðiráðgjöf Hafrannsóknastofnunarinnar

    Hafrannsóknastofnun hefur boðað hagsmunaaðila í sjávarútvegi til fundar á morgun 4. júní.  Þar mun stofnunin fara yfir niðurstöður rannsókna á ástandi fiskistofna ásamt því að kynna veiðiráðgjöf sína fyrir fiskveiðiárið 1-20-2010.

  • Breytingar á reglum um geymslurétt

    Með breytingum á lögum um stjórn fiskveiða 22. mars sl. voru gerðar breytingar á reglum um geymslurétt.   Heimilt verður að flytja að hámarki 10% (33%) af úthlutuðu aflamarki frá yfirstandandi fiskveiðiári yfir á fiskveiðiárið sem hefst 1. september nk.   Frá og með næsta fiskveiðiári verður geymsluréttur hins vegar 15%.    Þá er ráðherra gefin…

  • Línuívilnun í 20% og trektarbátar með 15%

    Breytingar á lögum um stjórn fiskveiða voru samþykktar á Alþingi 22. mars sl.   Meðal þeirra voru að frá og með deginum í dag, 1. júní, hækkar línuívilnun úr 16% í 20%.  Auk þeirra sem fengið hafa línuívilnun bætast nú við dagróðrabátar þar sem línan er stokkuð upp í landi (trektarbátar), þeir fá 15% ívilnun.  …