Month: January 2011
-
BioPol spreitir sig á grásleppuhvelju
Í samstarfi við Háskólann á Akureyri og Seanergy í Færeyjum hefur BioPol á Skagaströnd í nokkur misseri rannsakað nýtingu á grásleppuhvelju til kollagenframleiðslu. Meginmarkmið rannsóknarinnar er að kanna hvort grásleppuhveljan geti hentað framleiðslu á kollageni sem nýta mætti í snyrtivörur. Sýnishorn af framleiðslunni hafa verið send til Junca Gelatins á Spáni þar sem framkvæmdar voru…
-
Hefur þorskurinn breyst síðan amma var ung?
Föstudaginn 14. janúar kl 12:30 flytur Klara B. Jakobsdóttir erindi í málstofu Hafrannsóknastofnunarinnar sem ber þetta skemmtilega heiti: Hefur þorskurinn breyst síðan amma var ung? Erindið verður í fundarsal Hafró á fyrstu hæð Skúlagötu 4. Í ágripi segir m.a. að í fyrirlestrinum verði kynnt rannsókn á erfðafræðilegum breytingum þorsks á seinni hluta síðustu aldar. …
-
Fiskmarkaðir sækja í sig veðrið
Á sl. þremur fiskveiðiárum hefur hlutfall þorsks, ýsu, steinbíts og ufsa sem selt er á fiskmörkuðum vaxið. Á fiskveiðiárinu 2007/2008 voru 25.618 tonn af þorski selt á fiskmörkuðum, sem jafngilti 17% af heildarþorskafla þess árs. Síðasta fiskveiðiár skilaði hins vegar 37 þús. tonnum á markað sem jafngilti 21% af þorskaflanum. Hlutfall ýsu fór úr 32%…
-
Krókabátar auka hlutdeild sína í veiðum
Á árinu 2010 jókst aflahlutdeild krókabáta í fimm af sex tegundum þar sem aflinn fór yfir eitt þúsund tonn, miðað við árið 2009. Hæst varð aflahlutdeild þeirra í steinbít 45,6%. Eins má sjá í meðfylgjandi töflu að aflaaukning varð í þorski, ufsa og löngu en minna veiddist af ýsu, steinbít og keilu. 2010 …
-
Aflaverðmæti þorsks nálægt helmingi alls botnfisks
Aflaverðmæti fyrstu níu mánuði síðasta árs var 101 milljarður sem er aukning um 15 milljarða frá sama tímabili 2009. Verðmæti botnfisksaflans var 70,8 milljarðar, en 47% af því bar þorskurinn eða alls 33,3 milljarða. Aukning á aflaverðmæti þorsks milli ára var 26,9% og jókst hlutdeild hans í heildaraflaverðmæti úr 30,5% í 32,8%. Hlutur uppsjávaraflans í…
-
Skarphéðinn Árnason látinn
Hinn 27. desember sl. lést á Akranesi Skarphéðinn Árnason, trillukarl. Skarphéðinn fæddist 31. mars 1924. Skarphéðinn sat í stjórn LS frá stofnun árið 1985 til ársins 2005 sem fulltrúi Sæljóns, félags smábátaeigenda á Akranesi. Hann var gerður að heiðursfélaga í LS frá 2004. Skarphéðinn verður jarðsunginn frá Akraneskirkju föstudaginn 7. janúar nk. og hefst athöfnin…
-
Ársaflinn yfir milljón tonn
Heildaraflinn á síðasta ári varð 1.065 þús tonn sem er 6% minna en á árinu 2009. Uppsjávartegundirnar síld, loðna, kolmunni og makríll voru 54% af heildaraflanum eða 580 þús tonn sem er nánast jafnmikið og veiddist í þessum tegundum 2009. Mest var veitt af síld 254 þús. tonn. Heildarafli í þorski varð 177,7 þús.…
-
Lögskráning – öryggisfræðslunámskeið úti á landi
Slysavarnaskóli sjómanna hefur orðið við beiðni LS um námskeiðahald úti á landi. Skólinn mun heimsækja fjóra staði í febrúar og mars og halda bæði námskeið fyrir þá sem áður hafa lokið öryggisfræðslu hjá skólanum – endurmenntun og smábátanámskeið. Dagskráin er eftirfarandi: Ísafjörður 1. og 2. febrúar Smábátanámskeið 1. febrúar Endurmenntun smábáta…
