Month: February 2011
-
Endurnýjun haffærisskírteina með rafrænum hætti
Frá og með næstu mánaðarmótum, 1. mars, verður einungis hægt að endurnýja haffærisskírteini með rafrænum hætti, ekki dugar að senda tölvupóst. Ástæða þessarar breytingar er að Siglingastofnun þarf að uppfylla alþjóðlegar kröfur um gæðavottun sem m.a. kallar rekjanleika umsókna. Eins og fyrr þarf að framkvæma venjubundnar skoðanir áður en haffærið er gefið út. Rafrænt…
-
Nýtt á heimasíðunni – góð kæling, meiri gæði
Nú þarf ekki lengur að slumpa á hversu mikinn ís þarf til að kæla aflann niður í 0°C. Hægt er að styðjast við myndina hér að ofan. Setja bendilinn á bátinn og ýta honum eftir ferlinum og stöðva við hitastig sjávar á veiðistað. Þá kemur í ljós það ísmagn sem þarf til að kæla eitt…
-
Fiskistofa eykur þjónustuna – framsalsheimildir
Vegna breyttra framsalsreglna sem tóku gildi við upphaf þessa fiskveiðiárs hefur Fiskistofa bætt inn á heimasíðu sína upplýsingalink – framsalsheimild. Þar koma fram upplýsingar um úthlutun og hversu mikið er framseljanlegt. Lagaákvæðið kveður á um að helmingur úthlutaðra þorskígilda eru framseljanlegar. Með því að blikka hér, slá inn skipaskrárnúmer viðkomandi og blikka á framsalsheimild,…
-
Hugmyndir kynntar um breyttar vigtarreglur, ísprósentu og slægingarstuðla
Fyrr í dag hélt boðaði sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið hagsmunaaðila til kynningarfundar um niðurstöðu starfshóps um tillögur að breyttum reglum um vigtun. Í kynningunni kom m.a. fram hjá Eyþóri Björnssyni fiskistofustjóra að ætlunin er með breytingunum að lækka kostnað og fækka áhættuþáttum sem leiða geta til rangrar vigtunar. Endanleg vigtun mundi fara fram á hafnarvog. Fastur…
-
Hlutdeildarýsan uppurin hjá krókaaflamarksbátum
Hlutdeild krókaaflamarksbáta í ýsu er 15,1% sem skilaði þeim 5.909 tonnum í aflamark. Athygli vekur að nú þegar aðeins eru liðnir rúmir fimm mánuðir af fiskveiðiárinu hafa þeir veitt 6.165 tonn eða 256 tonnum umfram hlutdeildarúthlutunina. Ýsuafli krókaaflamarksbáta er rúm 34% af heildarýsuaflanum það sem af er fiskveiðiárinu. Þrátt fyrir stirðleika á leigumarkaðinum hafa krókaaflamarksbátar…
-
Útgerð og fiskvinnsla á Ströndum að stöðvast – ráðherra hvattur til að grípa til aðgerða
Hagsmunaaðilar í Steingrímsfirði sendu nýverið Jóni Bjarnasyni sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra bréf þar sem þeir lýsa áhyggjum sínum varðandi aflaheimildir ýsu og erfiðs ástands á framsalsmarkaði. Við Steingrímsfjörð á Ströndum starfa nú ríflega 20 smábátaútgerðir, þar eru tvö fyrirtæki með bolfiskvinnslu og fiskmarkaður. Sem heild eru þessi fyrirtæki megin grunnstoð undir nærsamfélaginu þar eins og…
-
Byggðakvóti – byggðaívilnun komi í stað flókinna úthlutnarreglna
Að undanförnu hefur nokkuð verið fjallað um byggðakvóta og óánægju með að hann skuli ekki nýtast að fullu á því fiskveiðiári sem honum er úthlutað á. Í viðtali við RÚV sagði formaður LS í stað flókinna reglna sem leiddi af sér langt kæruferli hefði LS lagt til að kæmi byggðaívilnun, „þar sem menn fengju…
-
Auglýst eftir umsóknum um byggðakvóta hjá sjö byggðarlögum
Fiskistofa auglýsir nú eftir umsóknum um byggðakvóta fyrir sjö byggðarlög. Þar er stuðst við reglugerð um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á yfirstandandi fiskveiðiári. Bolungarvík Kaldrananeshreppur ( Drangsnes ) Standabyggð ( Hólmavík ) Blönduósbær Grýtubakkahreppur ( Grenivík ) Hjá þessu stöðum er auk reglugerðarinnar stuðst við sérstakar úthlutunarreglur. Þá nær auglýsingin einnig til Grundarfjarðarbæjar (…
