Month: April 2011

  • Páskastopp á landanir á grásleppu

    Það sem af er grásleppuvertíðinni hefur verið landað 236 tonnum af heilli grásleppu á móti 34 tonnum á síðasta ári.  Sjómenn hafa að langmestum hluta selt grásleppuna til Tritons ehf sem flytur hana frosna til Kína. Verkefnið er samstarfsverkefni LS og Tritons ehf og er nú verið að keyra þriðja hluta þess „Grásleppan í Kína. …

  • Matís og LS halda námskeið um aflameðferð

    LS og Matís efna á næstu dögum til námskeiða um bætta aflameðferð.  Þar munu sérfræðingar Matís halda fyrirlestra og kynna nýjustu vísindin í meðferð afla, hvernig skal umgangast hann þannig að hæsta verð fáist við sölu hans og neytendur verði ánægðir með gæðin. Afli smábáta er ferskasta hráefni sem völ er á, en til að…

  • Smábátaeigendur á Húsavík boðaðir til fundar

    Klettur – félag smábátaeigenda á N-landi eystra – boðar félagsmenn sína á Húsavík til fundar á morgun mánudaginn 11. apríl kl 20:00.   Á fundinum verða kynnt samningsdrög milli Kletts og Framsýnar.   Pétur Sigurðsson formaður Kletts mun kynna drögin og hvetur hann alla félagsmenn á Húsavík að mæta til fundarins, taka þátt í umræðum og…

  • Föstudagshrós til Flateyrar

    Það er gott að enda vikuna með því að benda á skemmtilega umfjöllun sem birtist snemma í morgun á bloggi DV undir fyrirsögninni „Föstudagshrós. Þar er á ferðinni Þorsteinn Másson sem lýsir sjálfum sér þannig að hann sé með „sjávarútvegsblæti á háu stigi… en losni aldrei við sjóveikina. Í blogginu lýsir hann í stuttu máli…

  • Samningaviðræður milli Kletts og Framsýnar

    Um nokkurt skeið hafa staðið yfir viðræður milli Kletts – félags smábátaeigenda á Norðurlandi eystra og Framsýnar stéttarfélags um gerð kjarasamnings.  Formenn félaganna þeir Pétur Sigurðsson og Aðalsteinn Baldursson hafa stjórnað viðræðunum.   Framsýn hefur nú boðað húsvíska smábátasjómenn til fundar nk. sunnudag þar sem fundarefnið er:  Kynning á kjarsamningi fyrir smábátasjómenn – afgreiðsla.   Auglýsingin ber…

  • Strandveiðar 2011 – reglugerð undirrituð

    Jón Bjarnason sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra hefur undirritað reglugerð um strandveiðar sem hefjast 1. maí næst komandi.   Reglugerðin er óbreytt frá síðasta ári að því undanskildu að á svæði C, Þingeyjarsveit – Djúpavogshreppur, eru mánaðarlegar viðmiðanir lækkaðar á fyrri hluta tímabilsins maí – september og hækkaðar til jafns á síðari hluta þess.   Þá er í…

  • 203 bátar byrjaðir á grásleppu

    Í gær 4. apríl höfðu 203 bátar hafið grásleppuveiðar.  Þetta eru nokkuð færri en á sama tíma í fyrra, en þá höfðu 225 bátar lagt netin.   Fækkunin gefur þó ekki tilefni til að ætla að áhugi á veiðunum sé minni en í fyrra þar sem veiðidagar eru nú 12 færri eða 50.  Af þeim sökum kjósa…

  • Tilboð á skipaskoðun fyrir smábátaeigendur

    Fyrir skömmu barst eftirfarandi bréf á skrifstofu LS: BSI á Íslandi ehf fékk í byrjun árs 2009 starfsleyfi til að framkvæma skoðanir á skipum og hefur ráðið til sín alla skoðunarmenn sem áður störfuðu hjá Skipaskoðun Íslands.  BSI hefur áhuga á að auka umsvif sín á höfuðborgarsvæðinu og vill í því sambandi bjóða félögum Landssambands…