Month: May 2011

  • Framundan er mikil barátta í að verja smábátaútgerðina

    Í hádegisfréttum RÚV var fjallað um boðaðar breytingar á lögum um stjórn fiskveiða.  Þar sem fréttastofan segist hafa frumvörpin undir höndum verður að telja fréttina áreiðanlega.   Þar segir m.a. að:   ·      15% kvótans verði tekin af útgerðarmönnum ·      helmingur kvótaaukningar fari í leigupotta ·      sveitarfélög fái fullt forráð yfir byggðakvóta ·      strandveiðar verði treystar…

  • Strandveiðar – best veiðist á svæði D

    Þegar sjö dagar eru liðnir af fyrsta tímabili strandveiðanna er mestur afli í róðri á svæði D, 645 kg.  Skammt þar á eftir er A-svæðið með 639 kg, en á svæðum C og D hefur veiði verið tregari. Hér má sjá stöðu veiðanna eftir 11. maí. Unnið upp úr gögnum frá Fiskistofu

  • Lúðuveiðar – ráðist að aldagamalli veiðiaðferð

    Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið hefur samþykkt tillögu Hafrannsóknastofnunar að banna notkun haukalóða við lúðuveiðar.  Bannið tekur gildi frá og með 1. janúar 2012, sbr. reglugerð nr 477/2011.   LS mótmælir ákvörðun ráðuneytisins harðlega og lýsir yfir miklum vonbrigðum með að ekki hafi verið fallist á tillögur félagsins um rannsóknir á áhrifum sleppingar á lúðu styttri en…

  • Strandveiðar komnar í fullan gang

    Alls hafa 367 bátar hafið strandveiðar.  Veiðarnar hafa gengið vel, 719 tonn höfðu fiskast í lok síðustu viku.  Meðaltal á hvern bát er því um 2 tonn. Talnaefni yfir veiðarnar:   Samantektin er unnin upp úr gögnum frá Fiskistofu.

  • Auglýsing um stöðvun strandveiða á svæði A

    Hinn 6. maí s.l. gaf sjávarútvegsráðuneytið út auglýsingu um stöðvun strandveiða á svæði A.  Stöðvunin gildir frá og með þriðjudeginum 10. maí. Auglýsingin lítur svona út í heild sinni: Auglýsing  um stöðvun strandveiða á svæði A, frá Eyja- og Miklaholtshreppi til Súðavíkurhrepps. 1.gr. Frá og með 10. maí 2011 eru strandveiðar bannaðar á svæði A,…

  • Ársfundur Gildis lífeyrissjóðs fékk ekki að ræða tillögur um aukið lýðræði

    Á ársfundi Gildis lífeyrissjóðs sem haldinn var 28. apríl sl., og fjallað hefur verið um hér á síðunni að undanförnu, kom berlega í ljós að samþykktum sjóðsins var beitt til að koma í veg fyrir að löglega frambornar tillögur um breytingar fengjust ræddar á ársfundi sjóðsins.  Tillögur í þá veru höfðu borist til stjórnar sjóðsins…

  • Grásleppuvertíðin – umfjöllun um framlengingu

    Fjallað var um framlengingu grásleppuvertíðarinnar á RÚV sl. föstudag.   Hlusta má á fréttina í heild með því að blikka hér eða lesa hana á vef RÚV.