Month: June 2011
-
Hafró leggur til fjórðungs niðurskurð í grásleppuafla
Hafrannsóknastofnun er ekki bjartsýn á ástand grásleppustofnsins. Í ástandsskýrslunni sem út kom í dag leggur stofnunin til að afli á vertíðinni 2012 verði ekki meiri en sem nemur 3.700 tonnum, sem svarar til 7.700 tunna af söltuðum grásleppuhrognum. Meðalveiði sl. 10 ára svarar til 10.540 tunna af hrognum. Frá meðaltalinu er skerðingin því 27%. Í…
-
Tillögur Hafró um hámarksafla 2011/2012
Hafrannsóknastofnunin hefur kynnt tillögur um hámarksafla fyrir fiskveiðiárið 2011/2012. Meðal þess sem þar kemur fram er að boðuð er aukning í þorski og ufsa en skerðing í ýsu og steinbít. Hækkunin í þorski er 17 þús. tonn (10,6%) og ufsa 5 þús. tonn (12,5%), 8 þús. tonna lækkun í ýsu (17,7%) og steinbít eitt þúsund tonn 11,7%.…
-
Fundur LS og sjávarútvegs- og landbúnaðarnefndar
Fyrr í kvöld funduðu fulltrúar Landssambands smábátaeigenda með sjávarútvegs- og landbúnaðarnefnd Alþingis. Þar kynnti LS umsögn félagsins við frumvarp til laga um stjórn fiskveiða (minna frumvarpið). Fundurinn gekk vel og var mörgum spurningum beint til fulltrúa LS á fundinum. Umsögn LS.pdf
-
Örn með sjómannadagsræðu í Grafarvogskirkju
Í morgun voru sjómannadagsmessur haldnar í mörgum kirkjum landsins. Meðal þeirra var Grafarvogskirkja þar sem Örn Pálsson framkvæmdastjóri LS flutti ræðu. „Minnt er á hvernig sjósókn fyrr á tímum gat verið erfið, andstyggileg – engu eirt. Sagt er frá baráttunni, samtakamættinum og að þeir treystu hvor öðrum. Stórkostlegri þekkingu formannsins og innsæi á siglingaleiðinni þegar…
-
Til hamingju með daginn!
Landssamband smábátaeigenda óskar félagsmönnum, sem og öllum sjófarendum og landsmönnum til hamingju með sjómannadaginn. Gleðilega hátíð.
-
Landssambandið á „Hátíð hafsins
Sjómannadagurinn er haldinn hátíðlegur um land allt. Víða er boðið upp á fjölbreytt skemmtiatriði og allt undirlagt í hátíðarhöldum. Í Reykjavík er haldin „Hátíð hafsins sem er nú enn viðameiri en undanfarin ár. Hátíðin hófst í dag og hápunkti nær hún á morgun á sjálfan sjómannadaginn. Meðal þess sem er á dagskrá er…
-
Minna frumvarpið komið til sjávarúvegsnefndar
Fyrstu umræðu um frumvarp til laga um breytingar á núverandi lögum um stjórn fiskveiða er lokið. Frumvarpið er nú til umfjöllunar í sjávarútvegsnefnd og hafa fulltrúar LS verið boðaðir til fundar hjá nefndinni nk. mánudag 6. júní. Á fundinum mun LS veita umsögn um frumvarpið og freista þess að ná fram breytingum á því. Helstu…
