Month: September 2011
-
Þorvaldur tekur við af Garðari
Aðalfundur Smábátafélags Reykjavíkur var haldinn sl. miðvikudag. Góð mæting var á fundinn og umræður fjörugar. Það bar til tíðinda á fundinum að Garðar Berg Guðjónsson sem verið hefur formaður félagsins sl. fimm ár gaf ekki kost á sér til endurkjörs. Nýr formaður Smábátafélags Reykjavíkur var kosinn Þorvaldur Gunnlaugsson (tv. á myndinni). Þorvaldur er…
-
Veiðar bannaðar á hrygningarsvæði steinbíts
Jón Bjarnason sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra hefur ákveðið með reglugerð að banna veiðar á hrygningarsvæði steinbíts á Látragrunni. Lokunarsvæðið er við hlið friðunarsvæðis sbr. reglugerð nr. 754/2010. Veiðibannið tekur gildi á morgun 15. september og gildir til og með 15. nóvember nk. Í fréttatilkynningu sem sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið hefur sent frá sér mun Hafrannsóknastofnunin rannsaka…
-
Makríllinn færir sig vestur fyrir land
Nýlokið er 29 daga leiðangri Árna Friðrikssonar þar sem útbreiðsla makríls í íslenskri lögsögu var könnuð. Leiðangurinn var þáttur í sameiginlegum rannsóknum Íslendinga, Norðmanna og Færeyinga á dreifingu og magni helstu uppsjávartegunda á ætissvæðum í NA-Atlantshafi og umhverfisaðstæðum þar. Í bráðabirgðaniðurstöðum íslenska hluta leiðangursins kemur m.a. fram að útbreiðsla makríls við landið var svipuð og…
-
Feikna afli hjá Eydísinni
Þeir feðgar Ólafur Hallgrímsson og Hallgrímur Ingi á Borgarfirði Eystri gerðu feikna góðan róður í upphafi fiskveiðársins. Sóttu djúpt út í Héraðsflóann og lentu í afbragðs fiski. Þorskur, vel haldinn og fallegur ruddist inn í Eydísina. Þegar upp var staðið hafði hún landað 9,3 tonnum í tveimur löndunum. Afli á hvert bjóð var 310 kg.…
-
Aðalfundir Árborgar, Bárunnar og Króks
Auk aðalfundar Smábátafélags Reykjavíkur halda Árborg, Báran og Krókur aðalfundi sína í þessari viku. Aðalfundur Árborgar Fundurinn verður í Rauða húsinu á Eyrarbakka nk. fimmtudag 15. september og hefst kl 19:30. Fjöldi báta á félagssvæði Árborgar voru 13 á síðasta ári. Formaður Árborgar er Þorvaldur Garðarsson Aðalfundur Bárunnar Báran heldur aðalfund á Sufistanum í Hafnarfirði.…
-
Dragnót – ráðherra líti til Austfjarða
Félag smábátaeigenda á Austurlandi hefur ritað Jóni Bjarnasyni sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra bréf er varðar dragnótaveiðar. Í bréfinu fagnar félagið nýtilkomnu banni við dragnótaveiðum á Vestfjörðum. Félagið hvetur ráðherra jafnframt til að skoða alvarlega lokun á fjörðum Austfjarða. „Með slíkri aðgerð næðist gríðarlegur ávinningur í verndun grunnslóðar og friðun á uppeldisstöðvum botnfiska, eins og segir í…
-
Aðalfundur Smábátafélags Reykjavíkur
Smábátafélag Reykjavíkur boðar félagsmenn sína til aðalfundar miðvikudaginn 14. september. Fundurinn verður í húsnæði félagsins í Suðurbugt (Verbúð 5) og hefst kl 20:00. Félagsmenn eru hvattir til að fjölmenna til fundarins og taka þátt í að móta afstöðu félagsins í hinum ýmsu málum. Þar má nefna fyrirhugaðar breytingar á lögum um stjórn fiskveiða, strandveiðar, grásleppumál…
-
Þorvaldur Garðarsson á ÍNN
Í sumar hefur fv. sjávarútvegsráðherra Einar Kr. Guðfinnsson verið með viðtalsþætti á sjónvarpsstöðinni ÍNN. Í þáttunum hefur verið leitast við að krifja málefni sjávarútvegsins og til þess hefur Einar fengið til sín góða gesti. Þorvaldur Garðarsson formaður Árborgar og stjórnarmaður í Landssambandi smábátaeigenda var viðmælandi hans 11. ágúst sl. Í viðtalinu kom Þorvaldur víða…
-
Þjóðin og kvótinn
Lagastofnun Háskóla Íslands hefur boðað til opins fundar á morgun, miðvikudaginn 7. september. Tilefni fundarins er útkoma 9. heftis ritraðar Lagastofnunar, Þjóðin og kvótinn: Um íslenska fiskveiðistjórnkerfið 1991 – 2010 og stjórnskipuleg álitaefni. Fundurinn verður í Lögbergi, stofu 101, kl 12:00 – 13:10. Sjá nánar.
