Month: November 2011
-
Fundað um frjálsar handfæraveiðar
Fyrsti fundur nefndar LS um frjálsar handfæraveiðar hefur verið boðaður á morgun 16. nóvember. Nefndin var kosin á aðalfundi Landssambands smábátaeigenda og hefur það að markmiði að móta í samráði við stjórn og forystu LS tillögur að frjálsum handfæraveiðum sem hafi beina hagsmuni af strandveiðum, sem verði utan aflahlutdeildarkerfisins og skerði ekki aðra. Í samþykkt…
-
Kjaraviðræður LS og SSÍ
Eins og frá var greint á þessum vettvangi 7. nóvember sl. óskaði Sjómannasamband Íslands eftir viðræðum við LS um gerð kjarasamnings fyrir sjómenn á smábátum. Fyrsti fundur aðila var haldinn sl. miðvikudag. Fundurinn var á vinsamlegum nótum þar sem farið var yfir stöðuna. Næsti fundur var ákveðinn 21. nóvember nk. Í dag fjallaði…
-
Að geta þess sem vel er gert
Í dag, fimmtudaginn 10. nóvember birtist í Fiskifréttum grein eftir formann LS, Arthur Bogason. Greinin ber fyrirsögnina „Að geta þess sem vel er gert og fjallar um árangur í slysavörnum til sjós síðustu áratugi. „Frá því ég fékk vit til að fylgjast með því sem ég hef alla tíð haft mestan áhuga á, fiskveiðum og…
-
Steinbítur óskast
Fiskistofa hefur auglýst eftir steinbít í skiptum fyrir þorsk, keilu eða rækju í Djúpi. Magnið skiptist þannig: Þorskur 86.258 kg Keila 39.557 kg Rækja í Djúpi 11.683 kg Frestur til að skila inn tilboðum er til kl 16:00 þriðjudaginn 15. nóvember. Nánar með því að blikka hér.
-
LS og Sjómannasambandið ræða kjarasamning
Sjómannasambands Íslands óskaði í síðustu viku eftir viðræðum við Landssamband smábátaeigenda um gerð kjarasamnings fyrir sjómenn á smábátum. LS hefur svarað erindinu þar sem félagið lýsir sig reiðubúið til viðræðna. Fyrsti fundur hefur verið ákveðinn nk. miðvikudag 9. nóvember.–
-
Slæmar fréttir af íslensku sumargotssíldinni
Bráðabirgðaniðurstöður af bergmálsmælingum á síld í Breiðafirði gefa ekki tilefni til bjartsýni á að sýking síldarinnar sé í rénum. Enn er hátt hlutfall stofnsins sýkt eða um 37%, en á síðasta ári var hlutfallið 34% og 2009 43%. Við rannsóknir á síldarstofninum við Suður og S-A land kom í ljós að þar er síldin minna…
-
Tíu tillögur til varnar höfunum
Á aðalráðstefnu UNESCO í París hinn 1. nóvember s.l. var kynnt og undirbúin áætlun sem fer fyrir ráðstefnu Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun, árið 2012. Ráðstefnan er framhald ráðstefnunnar sem haldin var í Rio árið 1992 og 2002 í Jóhannesarborg. Ráðstefnan 2012 ber heitið Rio +20. Í áætluninni er m.a. farið yfir mikilvægi haf- og…
-
Hærra hlutfall línuveiddrar ýsu
LS hefur tekið saman aflatölur í þorski, ýsu og steinbít fyrstu níu mánuði ársins og borið saman við tímabilið í fyrra. Aflinn er minni í öllum tegundunum. Mestur er samdrátturinn í ýsu 27,7%, 10,7% í steinbít og 2,5% í þorski. Samanlagður afli í tegundunum þrem minnkar um 9,6% á milli ára. Hlutdeild hvers útgerðarflokks í…
-
Varðskipið Þór í Reykjavíkurhöfn – myndskeið
Hið nýja varðskip Landhelgisgæslunnar, Þór, kom til Vestmannaeyja s.l. miðvikudag. Daginn eftir sigldi hann inn í Reykjavíkurhöfn og lagðist að bryggju. Fjölmenni var viðstatt atburðinn. Skipið var til sýnis um helgina og náði biðröðin á stundum því að vera talsvert lengri en skipið, sem er þó yfir 94 metrar á lengd. Vafalaust hafa færri komist…
