Month: January 2012
-
Guðmundur Halldórsson í viðtali við Morgunblaðið
„Guðmundur heiti ég Halldórsson er hin hefðbundni máti kempunnar úr Bolungarvík er hann heilsar mönnum, hvort sem þeir þekkja hann eða ekki. Smábátaeigendur eiga honum meira upp að unna en flesta þeirra grunar. Hann hefur verið óþreytandi baráttumaður fyrir öflugri smábátaútgerð sem og bættum hag hinna smáu og dreifðu sjávarbyggða. Röddin hans er full sannfæringar…
-
Strandveiðar – skora hátt á fiskmörkuðunum
Þorskur veiddur á handfæri sem seldur var á fiskmörkuðum jókst um þriðjung í magni á nýliðnu ári 2011 frá 2010. Hlutur þeirra var rúmur fjórðungur alls þorsk sem þar var seldur. Fullyrða má að hin mikla aukning komi frá strandveiðum. Mest var selt af þorski sem veiddur var á línu 37,1% heildarmagnsins, sem var…
-
Ýsan bíður til febrúars
Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið hefur ákveðið að engin skipti með aflamark verði í janúar. Margir bjuggust við að ýsu sem hefur verið skilað vegna jöfnunarheimilda og komin er umfram það sem ætlað var til potta yrði boðin í skiptum öðru sinni nú í janúar. SLR taldi hins vegar rétt að bíða til febrúars enda búist…
-
Byggðakvóti – Þorlákshöfn, Sandgerði og Hornafjörður
Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið hefur birt forsendur byggðakvóta yfirstandandi fiskveiðiárs. Við samanburð á sambærilegum forsendulista fyrir sl. fiskveiðiár kemur í ljós að þrjú byggðar- og sveitarfélög eru ný á listanum í ár. Það eru Þorlákshöfn – 300 tonn, Sandgerði – 101 tonn og Hornafjörður með 86 tonn. Sjá lista: Forsendur fyrir byggðakvóta
-
Breytt fyrirkomulag um rástöfun afla í VS sjóðinn
Undanfarið hafa borist nokkrar fyrirspurnir frá félagsmönnum varðandi breytt fyrirkomulag um ráðstöfun afla í Verkefnasjóð sjávarútvegsins. M.a. hafa menn verið í vandræðum með að finna hvar lesa megi sig til um þetta. Það er ekki með öllu óeðlilegt. Þessi breyting er inn í stóru reglugerðinni um sjórn fiskveiða fyrir fiskveiðiárið 2011/2012, en ekki í sérstakri…
-
Reglugerð í rétta átt
Hinn 30. desember s.l. gaf sjávarútvegsráðuneytið út reglugerð um nýtingu afla og aukaafla. Reglugerðin miðar að því að vinnsluskipum er skylt að koma með að landi aukaafurðir, sem fram til þessa hafa farið að stórum hluta í hafið aftur. Þessi reglugerð er löngu tímabær og má telja með ólíkindum að vinnsluskipunum hafi verið liðið að…
-
Sanngirni og jafnræði í sjávarútvegi
Að beiðni Ólínu Þorvarðardóttur alþingismanns og nefndarmanns í atvinnuveganefnd Alþingis er hér birt grein eftir hana sem birtist í Fréttablaðinu 28. desember sl. „Sanngirni og jafnræði í sjávarútvegi Þessa dagana stendur yfir endurskoðun á frumvarpi sjávarútvegsráðherra frá því í vor um fiskveiðistjórnun. Frumvarpið byggði á svokallaðri samningaleið sem hagsmunaaðilar í greininni höfðu lagt þunga áherslu…
