Month: February 2012

  • Snæfell boðar til félagsfundar

    Snæfell – félag smábátaeigenda á Snæfellsnesi boðar félagsmenn sína til fundar á morgun fimmtudaginn 16. febrúar.   Fundurinn verður haldinn í Sögumiðstöðinni Grundarfirði og hefst kl 20:00. Dagskrá fundarins verður helguð kjaraviðræðum sem nú standa yfir milli LS og SSÍ, FFSÍ og VM um kaup og kjör á smábátum.   Farið verður yfir stöðu viðræðnanna…

  • Tveir ýsustofnar – aðeins annar mældur

    Í Fiskifréttum sem út komu 9. febrúar sl. er rætt við Bárð Guðmundsson skipstjóra á Kristni II SH.  Í viðtalinu ræðir hann m.a. um gott ástand á innfjarðarstofni ýsunnar.  „Fiskifræðingar segja að aðeins sé til einn stofn af ýsu, þ.e. göngufiskurinn sem flækist um á togaraslóðinni.  Ef hann finnst ekki er sagt að engin ýsa…

  • Skiptimarkaður Fiskistofu – 464 tonn af ýsu

    Fiskistofa hefur auglýst skipti á aflamarki.  Í pottinum eru 15 tegundir.  Mestur hluti þeirra eru ýsa og steinbítur – alls 920 tonn.    Tegundirnar eru boðnar í skiptum fyrir afla- eða krókaaflamark í þorski, ýsu, ufsa og/eða steinbít. Frestur til að skila inn tilboðum er til kl 16:00 nk. fimmtudag 16. febrúar. Eftir að búið…

  • Ýsuveiðiheimildir verði auknar

    Í Fiskifréttum í gær 9. febrúar er grein eftir framkvæmdastjóra LS, Örn Pálsson.  Greinin ber yfirskriftina „Ýsuveiðiheimildir verði auknar og er áskorun á Steingrím J. Sigfússon sjávarútvegsráðherra. Ýsuveiðiheimildir verði auknar 1.pdf

  • Grásleppan með rúman 2,5 milljarð

    Útflutningsverðmæti grásleppuhrogna og kavíars sl. árs nam 2.551 milljón.  Það er samdráttur um tæpa 1,3 milljarða milli ára, sem skýrist að mestu af minni veiði.  Veiðin á vertíðinni 2011 jafngilti 10.700 tunnum af söltuðum hrognum sem var 40% minna en á metvertíðinni 2010. Verð á söltuðum hrognum og kavíar hreyfðist lítið milli áranna 2010 og…

  • Ýsan slær þorskinum við

    Það bar til tíðinda á fiskmörkuðum í dag að ýsa seldist á hærra verði en þorskur.  Seld voru 17,7 tonn af óslægðri ýsu og var meðalverðið 349 kr / kg.  Af þorski voru seld 37,7 tonn og fengu kaupendur hann á 340 kr hvert kíló. Eins og áður hefur komið fram eru markaðir fyrir ýsu…

  • Samningar verði til 25 – 30 ár

    Fyrsta tölublað Útvegsblaðsins kom út í lok janúar sl.  Meðal efnis í því eru svör framkvæmdastjóra LS við spurningum blaðsins um sjávarútvegsmál.  Hvaða breytingar þarf að gera á núverandi kerfi? Á að taka tillit til byggðarsjónarmiða og atvinnusjónarmiða í breyttum lögum? Samningar verði til 25-30 ára.pdf Flottroll utan 50 mílna.pdf

  • Hæstiréttur – heimilt að banna dragnótaveiðar

    Sverrir Sveinsson formaður Skalla ritaði grein í Morgunblaðið 1. febrúar sl.  Yfirskrift greinarinnar var „Hæstaréttardómur um dragnótaveiðar.  Í greininni fjallar Sverrir m.a. um nýfallinn dóm Hæstaréttar sem staðfesti að Jóni Bjarnasyni fv. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra hafi verið heimilt að banna dragnótaveiðar á grunnslóð, nánar tiltekið á Skagafirði. Grein Sverris.pdf Dómur Hæstaréttar

  • Lífeyrissjóðir – úttektin styrkir kröfur LS um lýðræði

    Úttektarnefnd Landssamtaka lífeyrissjóða hefur skilað af sér viðamikilli skýrslu.  Skýrslan er í fjórum bindum, auk kynningarefnis og samantektar.   Nefndin var skipuð af ríkissáttasemjara eftir að ósk þess efnis kom frá LL um þriggja manna nefnd „óháðra, óvilhallra og hæfra einstaklinga til að fjalla um fjárfestingarstefnu, ákvarðanir og lagaumhverfi sjóðanna fyrir hrunið.   Í nefndinni…

  • Byggðakvóti – 27 óska eftir sérreglum

    Frestur sveitarfélaga til að skila til sjávarútvegsráðuneytisins óskum um sérreglur um byggðakvóta rann út nú um mánaðarmótin.  Alls sendu 26 sveitarfélög ráðuneytinu tillögur um  sérstök skilyrði við úthlutun byggðakvóta. Fyrir nokkru birtist hér frétt um málefnið og er nú ljóst að enn bætist í hugmyndaflug sveitarstjórna um hvernig úthlutunarreglum skuli háttað.  Til að mynda er það…