Month: November 2010
-
Brýnt að auka strax við veiðiheimildir
Á fundum svæðisfélaga LS í haust töluðu menn einum rómi um að of varlega væri farið í veiðum á helstu fisktegundunum. Einkum var rætt um þorsk, ýsu og ufsa í þessum efnum. Meðal þeirra ályktana sem samþykktar voru er þetta varðar: LS skorar á sjávarútvegsráðherra að auka nú þegar kvóta helstu nytjastofna Ýsa Ýsa hjá…
-
Byggðakvóti verði lagður af í núverandi mynd
Á aðalfundi LS 14. og 15. október sl. urðu talsverðar umræður um byggðakvótann. Það sjónarmið var ríkjandi að hafa áfram þann öryggisventil sem byggðakvótanum er ætlað að vera, en nauðsynlegt væri að gera breytingar á framkvæmdinni. Niðurstaða aðalfundar var að leggja til gjörbreytt form og byggja úthlutun á sama fyrirkomulagi og er í línuívilnun. Þannig…
-
Þorskur – óverulegar breytingar á verði og magni
Samantekt á þorskafla og verði á mörkuðum á fyrstu tveim mánuðum fiskveiðiársins leiðir í ljós að óverulegar breytingar hafa orðið frá sama tímabili í fyrra. Heildarveiðin nú endaði í 1-0-30 tonni en var 3-7-29 tonn í fyrra. Verð á fiskmörkuðum hækkaði um 2,4% fór úr 328 kr/kg í 336 kr/kg. Aftur á móti…
-
Hvatt til sáttaleiðar
Forseti Farmanna- og fiskimannasambands Íslands ritar skoðunargrein í nýjasta tölublað Fiskifrétta, sem ber yfirskriftina „Drullubræla framundan“. Í greininni, sem rituð er undir hughrifum af ræðu sjávarútvegsráðherra á þingi LÍÚ, ræðst hann á ráðherrann og finnur störfum hans allt til foráttu. Ekki ætla ég deila þeirri skoðun með forsetanum. Ég ætla hins vegar að halda því…
-
Er flottrollið að skaða grásleppustofninn?
Á aðalfundi LS var upplýst að mikið af grásleppu veiddist sem meðafli í flottroll við síld- og makrílveiðar. Sjónarvottar sögðu frá heilu körunum fullum af grásleppu sem komið hefðu við löndun úr flottrollsskipum. Grásleppuveiðimenn lýstu áhyggjum sínum vegna þessa og töldu brýnt að veiðieftirlit Fiskistofu hefði meira eftirlit með löndun þessara skipa. Aðalfundur LS…
-
Ýsuafli minnkar um 30%
Ýsuafli á fyrstu tveim mánuðum fiskveiðiársins er 30% minni en á sama tíma í fyrra. Mestur er samdrátturinn hjá togurum þar sem aflinn er aðeins helmingur þess sem hann var á tímabilinu. Hjá krókaaflamarksbátum og aflamarksskipum er samdráttur svipaður milli ára, 23 og 24%. Samtals veiddust nú 2-9-8 tonn af ýsu á móti 3-7-12…
-
Línuívilnun til allra dagróðrabáta
Línuívilnun fékk sitt rúm á aðalfundi LS. Í ályktunum svæðisfélaga til aðalfundar var þess krafist að línuívilnun mundi ná til allra dagróðrabáta. Samþykkt aðalfundar var í þeim anda: LS krefst þess að línuívilnun skuli koma á alla dagróðrabáta. Örn Pálsson kom inn á málefnið í skýrslu sinni til aðalfundar og sagði eftirfarandi:…
-
Er samningaleiðin innan seilingar?
Á ársfundi LÍÚ flutti Jón Bjarnason sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra ræðu. Þar gerði hann skýrslu starfshópsins um endurskoðun laga um stjórn fiskveiða að umtalsefni og þakkaði þeim sem að komu, síðan sagði ráðherra: „Ýmsir hafa undanfarið stigið fram og fundið skýrslu hópsins margt til foráttu en það þarf hins vegar ekki að koma á óvart…
