Á fundum svæðisfélaga LS í haust töluðu menn
einum rómi um að of varlega væri farið í veiðum á helstu fisktegundunum. Einkum var rætt um þorsk, ýsu og
ufsa í þessum efnum.
Meðal þeirra ályktana sem samþykktar voru er
þetta varðar:
LS skorar á sjávarútvegsráðherra að auka nú
þegar kvóta helstu nytjastofna
Ýsa
Ýsa hjá smábátum sem veidd er á línu reiknist
aðeins að hálfu til afla- / krókaaflamarks fram að áramótum.
Ufsi
LS leggur til að ufsaveiðar á handfæri verði
gefnar frjálsar á tímabilinu 1. apríl – 31. ágúst.













