Month: March 2011
-
Grásleppuhrogn – Norðmenn setja lágmarksverð
Norðmenn hafa ákveðið að lágmarksverð á grásleppuhrognum (blaut hrogn) skuli vera 39,00 Nkr. Það er 10% hækkun frá því í fyrra í Nkr og rúmlega 13% hækkun í evrum. Á fundi kaupenda og seljenda varð ekki eining um verð og ákvað því Norges Råfisklag á grundvelli upplýsinga á fundinum verðið.
-
Strandveiðileyfi – þorskígildi á pari
Vakin er athygli á að óheimilt er að veita bát leyfi til strandveiða hafi verið flutt frá honum meira aflamark en hann hefur flutt til sín á fiskveiðiárinu. Hér er átt við þorskígildi og geta aðilar sem flutt hafa frá sér þorsk, keilu eða e-r aðrar tegundir parað sig með því að flytja til sín…
-
Kvótakerfið rætt í Háskóla Íslands
Áhugamönnum um sjávarútveg er bent á að þriðjudaginn 8. mars verður haldið málþing í Háskóla Íslands. Þar verður til umræðu: Kvótakerfið og samfélag: Hagkvæmni, réttlæti. Frummælendur verða: Ragnar Árnason : Kvótakerfi og hagkvæmni í sjávarútvegi Daði Már Kristófersson: Upptaka kvótaréttinda og hagkvæmni í sjávarútvegi Helgi Áss Grétarsson: Úthlutun kvótaréttinda í nokkrum ríkjum – lögmæti…
-
Flestir opnir bátar skráðir á Vestfjörðum
Í hagtíðindum Hagstofu Íslands sem út komu 25. febrúar sl. var fjallað um fiskiskipastólinn í árslok 2010. Þar er yfirlit um þróun flotans undanfarin ár, fjölda skipa, stærð þeirra, afl aðalvéla og skiptingu eftir landssvæðum. Meðal þess sem fram kemur er að fiskiskipum á skrá Siglingastofnunar fjölgaði um 43 á árinu og er öll fjölgunin…
-
Sigfús Jóhannesson í Grímsey: „Aldrei séð annað eins
Sigfús Jóhannesson, útgerðarmaður í Grímsey hefur orðið: „Ég hef verið hérna í Grímsey síðan 1972, og ég hef aldrei séð annað eins. Það var netabátur að landa um 15 tonnum og meðalvigtin var 12 kíló. Margir fiskar 20 kíló og þyngri. Það er óhemja af þorski á stóru svæði hér við Grímsey og litlu virðist…
-
Grásleppuveiðar – þjónusta Fiskistofu til fyrirmyndar
Fiskistofa hefur nú enn bætt þjónustu sína sem lítur að grásleppuveiðum. Auk upplýsinga um reglugerð, eyðublöð fyrir flutning réttinda og uppgjörsblaði fyrir vertíðina, veiðsvæði, skráningu afla við vigtun og fjölda annarra þátta eru nú komnar upplýsingar um handhafa grásleppuleyfa og virkni leyfanna, hvenær þau voru notuð síðast ofl. Alls eru leyfin 467. Grásleppusjómönnum ásamt…
-
Gulllaxveiðar stöðvaðar
Jón Bjarnason sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra hefur bannað togveiðar á gulllaxi frá og með 7. mars nk. Ástæðan er sú að aflinn er kominn framúr því sem Hafrannsóknastofnunin ráðlagði sem heildarafla. Á yfirstandandi fiskveiðiári mælti Hafró með að gulllaxafli færi ekki fram úr 8000 tonnum sem var óbreytt frá tillögum stofnunarinnar í fyrra. Veiði þá…
