Í
hagtíðindum Hagstofu Íslands sem út komu 25. febrúar sl. var fjallað um
fiskiskipastólinn í árslok 2010. Þar er
yfirlit um þróun flotans undanfarin ár, fjölda skipa, stærð þeirra, afl
aðalvéla og skiptingu eftir landssvæðum.
Meðal
þess sem fram kemur er að fiskiskipum á skrá Siglingastofnunar fjölgaði um 43 á
árinu og er öll fjölgunin í flokki opinna báta.
Þeim fjölgaði um 51 og eru nú 807 talsins. Vélskipum fækkaði um 7 og togurum um
einn. Alls voru fiskiskip í árslok 2010
1.625.
Flestir
opnir bátar eru skráðir með heimahöfn á Vestfjörðum eða tæpur fjórðungur – 192
talsins. Samanlagður fjöldi fiskiskipa
minni en 25 tonn er 1.345 sem 83% heildafjöldans. Stærð þessa flokks í brúttótonnum er hins
vegar 9.514 tonn sem jafngildir 6,2% af stærð heildarflotans. Þegar litið er til vélastærðar er heildarafl
báta minni en 25 brt 172.659 kWött eða 37% af heildarvélarafli flotans.













