Aðalfundur Kletts

Formaður Kletts, Pétur Sigurðsson, hefur óskað eftir að vakin verði athygli á aðalfundi félagsins sem verður um næstu helgi. Fundurinn verður sunnudaginn 25. september og hefst kl 14:00. Fundarstaður er Fiðlarinn á Akureyri. Félagsmenn eru hvattir til að fjölmenna til fundarins og taka þátt í umræðum, en samþykktir aðalfundar eru veganesti þeirra sem kjörnir verða á aðalfund LS sem haldinn verður í Reykjavík 14. og 15. október. Myndin er frá Akureyri.Akureyri_DSCF0040.jpg