Aðalfundur Bárunnar

Aðalfundur BÁRUNNAR, félag smábátaeigenda Hafnarfjörður – Garðabær, var haldinn sl. laugardag. Félagsmenn fjölmenntu á fundinn sem var hinn líflegasti. Á fundinum voru samþykktar ályktanir sem vísað var til 19. aðalfundar Landssambands smábátaeigenda sem haldinn verður 16. og 17. október. Gunnar Pálmason var endurkjörinn formaður félagsins og aðrir í stjórn voru kosnir: Brynjar Sigurðsson, Guðbrandur Magnússon, Jón Þorbergsson og Ólafur Karl Brynjarsson.