Frétt frá Snæfelli

Aðalfundur smábátafélagsins Snæfells verður haldinn á Hótel Framnesi Grundarfirði þriðjudaginn 30. september kl. 19.00.

Arthur Bogason og Örn Pálsson munu sitja fundinn og svara fyrirspurnum.

Að venju eru veglegar veitingar í boði félagsins.

Stjórn Snæfells hvetur félagsmenn til að fjölmenna.