Hugmyndum fjármálaráðherra um afnám sjómannaafsláttar mótmælt.

Stjórn Félags smábátaeigenda á Akranesi hefur sent frá sér eftirfarandi ályktun um sjómannaafslátt:

Öllum hugmyndum um afnám
sjómannaafsláttar harðlega mótmælt. Sjómannaafslátturinn er enn og aftur kominn á dagskrá Alþingis og nú er
dagskipunin einföld, sjómannaafsláttur skal afnuminn. Stjórn Félags
smábátaeigenda á Akranesi mótmælir harðlega hugmyndum fjármálaráðherra um niðurfellingu sjómannaafsláttar. Stjórnin hvetur þingflokka ríkisstjórnar sem og stjórnarandstöðu að hafna hugmyndum ráðherrans.
Stjórn Félags smábátaeigenda á Akranesi tekur heilshugar undir framkomnar tillögur fjölmargra sjómannafélaga um sama efni og hvetur alla sjómenn, jafnt á minni bátum sem og á stærstu skipum, til að standa fast á áratugalöngum réttindum – sjómannaafslættinum.

Akranesi 19. febrúar 2004

Gísli S. Einarsson formaður“

Hvað er skemmtilegra en að spá í veðrið”