Aðalfundur Árborgar – Þorvaldur Garðarsson endurkjörinn formaður

Aðalfundur Árborgar var haldinn sl. mánudag. Á fundinum var ákveðið að senda eftirfarandi tillögur til 20. aðalfundar LS:

Línuívilnun

Árborg hvetur aðalfund LS til að beita sér af alefli fyrir því að leiðrétt verði sá útúrsnúningur ráðherra að línuívilnun eigi eingöngu við um landbeitta línu.Arborg.jpg Aðalfundur Árborgar krefst þess að allir dagróðrabátar minni en 100 brúttótonn sem róa með línu njóti línuívilnunar án tillits til þess hvernig línan er beitt, enda er það í vægast sagt óeðlilegt að stjórnvöld séu að stjórna því með svo beinum hætti hvernig menn beita sína línu.

Möskvastærð þorskfiskneta

Árborg beinir þeim tilmælum til aðalfundar LS að þess verði krafist af sjávarútvegsráðherra að ekki verði gengið lengra en nauðsynlegt er í takmörkun á notkun stórra möskva við netaveiðar.
Bann við notkun veiðarfæra svo sem stórra möskva í þorskanetum þarf að vera stutt vönduðum rannsóknum sem gefa skírar niðurstöður.

Veiðibann á hrygningartíma þorsks

Árborg beinir þeirri tillögu til aðalfundar LS að reynt verði að sjá til þess að páskar falli inn í hrygningarstoppið. Á síðasta ári byrjaði hrygningarstoppið á annan í páskum og allir geta séð að þar var á ferðinni ákvörðun sem fól í sér mikil óþægindi fyrir bæði sjómenn, landverkafólk og fiskvinnslufyrirtæki og var ekkert annað en lúmsk leið til að lengja hrygningarstoppið sem okkur þykir ærið fyrir.

Rannsóknir á keilu og löngu

Aðalfundur Árborgar beinir þeirri tillögu til aðalfundar L.S. að rannsóknir verði efldar á keilu og löngustofnunum og kvóti í þessum tegundum verði aukinn vegna stóraukinnar útbreiðslu þessara tegunda eða að þær verði alfarið teknar úr kvótasetningu.

Engar veiðarfæratakmarkanir á krókabáta

Aðalfundur Árborgar leggur til að veiðarfæratakmörkunum verði létt af krókaaflamarksbátum.

Stjórn Árborgar var endurkjörin, í henni eru:
Þorvaldur Garðarsson formaður
Haukur Jónsson varaformaður
Ragnar Jónsson ritari
Stefán Hauksson gjaldkeri
Ólafur Sigurmundsson meðstjórnandi