Taka ber tillit til fiskifræði sjómannsins
Landssamband smábátaeigenda mótmælir ákvörðun sjávarútvegsráðherra að taka ekki meira tillit til fiskifræði sjómannsins um að auka þorskvóta þessa árs frá því sem hann var á sl. fiskveiðiári.
Greinargerð
Hafró segir lítið æti vera fyrir þorskinn, ætti það að gefa ástæðu til aukningar kvótans, en ekki minnkunar.
Steinbítur – endurskoðun á úthlutun
Landssamband smábátaeigenda beinir þeirri áskorun til Hafró og sjávarútvegsráðherra að endurskoða úthlutun í steinbít á yfirstandandi fiskveiðiári.
Greinargerð.
Samdráttur sá sem varð á veiðinni síðasta fiskveiðiár er aðallega tilkominn vegna lágs verðs í vor en ekki að illa hafi gengið að veiða steinbítinn.
Auknar rannsóknir
Landssamband smábátaeigenda krefst þess að rannsóknir verði efldar á keilu, skötusel, löngu og karfa og kvóti í þessum tegundum verði aukinn vegna stóraukinnar útbreiðslu þessara tegunda eða að þær verði alfarið teknar úr kvótasetningu.
Loðnuveiðar
Landssamband smábátaeigenda mótmælir hvernig staðið er að ákvörðun loðnukvóta og vill að loðnuveiði verði bönnuð norðan Snæfellsness á hrygningartíma.
Veiðigjaldi mótmælt
Landssamband smábátaeigenda mótmælir veiðigjaldi.
Gjalddagi veiðigjaldsLandssamband smábátaeigenda óskar eftir að gjalddagi fyrir 1. afborgun á veiðigjaldi verði 15. október í stað 15. september eins og nú er.
SjómannaafslátturLandssamband smábátaeigenda mótmælir áformum fjármálaráðherra um afnám eða lækkun á sjómannaafslætti.
Mótmæli við auknum álögum á sjávarútveginn
Landssamband smábátaeigenda mótmælir auknum álögum á sjávarútveginn sem ekki eru í samræmi við veitta þjónustu.
Hrefnuveiðar
Landssamband smábátaeigenda fagnar hrefnuveiðum og lýsir stuðningi við veiðar á hvölum.
LS telur óeðlilegt að nýta ekki þær auðlindir sem þjóðin hefur yfir að ráða. Hvalir og önnur sjávarspendýr eru í beinni samkeppni við okkur um fiskinn.