Steinbítsveiðar í hrygningarstoppi
Landssamband smábátaeigenda skorar á sjávarútvegsráðherra að heimila dagróðrabátum minni en 15 m að stunda steinbítsveiðar á tilgreindu svæði í hrygningarstoppi.![]()
Jafnframt er bent á að hrygningarstopp ætti ekki að eiga við um báta sem stunda veiðar með línu og handfærum.![]()
Notkun stórra möskva
Landssamband smábátaeigenda krefst þess af sjávarútvegsráðherra að ekki verði gengið lengra en nauðsynlegt er í takmörkun á notkun stórra möskva við netaveiðar.
Bann við notkun veiðarfæra svo sem stórra möskva í þorskanetum þarf að vera stutt vönduðum rannsóknum sem gefa skýrar niðurstöður.
Myndir með þessari frétt eru frá nefndarfundum á aðalfundi.













