Sjávarútvegsráðuneytið verður við óskum LS um styttingu grásleppuvertíðarinnar

Sjávarútvegsráðuneytið hefur gefið út reglugerð um hrognkelsaveiðar. Í henni er orðið við óskum LS um styttingu vertíðarinnar um þriðjung. Veiðitími verður nú 60 dagar í stað 90 í fyrra. Hefst vertíðin við Reykjanes sunnan Garðskaga nú 15. mars í stað 5. mars í fyrra. Þá lýkur vertíðinni á innanverðum Breiðafirði og á Vestfjörðum 18. júlí í stað 7. ágúst í fyrra. Á öllum veiðisvæðum hefjast veiðar 10 dögum síðar en í fyrra og lýkur 20 dögum fyrr.
Til nánari upplýsinga er reglugerðin birt hér í heild sinni.

REGLUGERÐ
um hrognkelsaveiðar.

1. gr.
Allar veiðar á grásleppu í fiskveiðilandhelgi Íslands eru óheimilar nema að fengnu sérstöku leyfi Fiskistofu.

2. gr.
Aðeins er heimilt að veita þeim bátum leyfi til grásleppuveiða, sem rétt áttu til slíkra leyfa á vertíðinni 1997, sbr. reglugerð nr. 6-19-58, enda hafi þeir leyfi til veiða í atvinnuskyni, sbr. lög nr. 0-19-38. Óheimilt er að veita bátum, sem eru stærri en 15 brt., leyfi til grásleppuveiða, hafi þeir ekki haft leyfi til veiða á grásleppu vertíðina á undan. Heimilt er að binda úthlutun leyfa og leyfi til grásleppuveiða þeim skilyrðum, sem þurfa þykir, m.a. varðandi skýrsluskil um veiðarnar.

3. gr.
Flutningur grásleppuveiðileyfis milli báta er bundinn eftirfarandi skilyrðum: a) að bátur, sem leyfi er flutt frá, hafi haft það í a.m.k. eina vertíð, b) að bátur, sem grásleppuveiðileyfi er flutt til, hafi leyfi til veiða í atvinnuskyni, c) að hinn nýi bátur sé ekki meira en 2.5 brúttótonnum stærri en sá bátur, sem veiðileyfið er flutt frá og d) að eigandi báts sem grásleppuveiðileyfi hefur undirriti beiðni um flutning leyfis.
Eftir 1. janúar 2006 skal heimild til flutnings grásleppuveiðileyfis milli báta bundin því skilyrði, að bátur sem leyfi er flutt til sé ekki stærri í brúttótonnum en bátur sá sem veiðileyfið er flutt frá sbr. c. lið 1. mgr.

4. gr.
Við sölu báts, sem hefur leyfi til grásleppuveiða, fylgir leyfið bátnum nema um annað sé samið í kaupsamningi. Hafi seljandi báts, með grásleppuveiðileyfi, tekið fram í kaupsamningi, að grásleppuveiðileyfið fylgdi ekki með við sölu bátsins, hefur seljandinn heimild til að flytja leyfið á annan bát, enda hafi sá bátur leyfi til veiða í atvinnuskyni og sé innan stærðarmarka sbr. 2. og 3. gr. Tilkynna skal til Fiskistofu fylgi leyfi til grásleppuveiða ekki báti við sölu hans. Nýti seljandi ekki ofangreinda heimild til að flytja grásleppuveiðileyfi á annan bát næstu tvær vertíðir frá sölu bátsins fellur leyfið niður. Ákvæði þessarar greinar taka eftir því sem við á einnig til þess tilviks, þegar bátur er tekinn af skipaskrá Siglingastofnunar Íslands.

5. gr.
Eingöngu er heimilt að nota við grásleppuveiðar þann bát, sem tilgreindur er í veiðileyfi. Ekki er heimilt að stunda á sama tíma veiðar á grásleppu og netaveiðar á þorskfiski. Um grásleppuveiðar krókabáta vísast til ákvæða reglugerða um veiðar krókaaflamarksbáta og dagabáta.

6. gr.
Hvert veiðileyfi skal bundið við ákveðið veiðisvæði og veiðitíma. Er leyfilegur veiðitími á hverju veiðisvæði sem hér segir:

A: Fyrir Vesturlandi, frá línu réttvísandi vestur frá Garðskagavita að línu réttvísandi vestur frá Dritvíkurflögum, er veiðitímabilið 11. apríl – 9. júní.
B: Í Breiðafirði, frá línu réttvísandi vestur frá Dritvíkurflögum að línu réttvísandi vestur frá Bjargtöngum, er veiðitímabilið 11. apríl – 9. júní.
Innan línu, sem dregin er úr Krossnesvita, vestan Grundarfjarðar, í Lambanes, vestan Vatnsfjarðar, er veiðitímabilið þó 20. maí – 18. júlí.
Séu grásleppuveiðar hafnar fyrir 20. maí samkvæmt þessum lið skal veiðum viðkomandi báts hætt eigi síðar en 9. júní.
C: Fyrir Vestfjörðum, frá línu réttvísandi vestur frá Bjargtöngum að línu réttvísandi norður frá Horni, skulu veiðileyfishafar velja milli þess að stunda veiðar innan veiðitímabilsins 15. apríl – 13. júní eða veiðitímabilsins 20. maí – 18. júlí.
D: Í Húnaflóa, frá línu réttvísandi norður frá Horni að línu réttvísandi norður frá Skagatá, er veiðitímabilið 25. mars – 23. maí.
E: Fyrir Norðurlandi, frá línu réttvísandi norður frá Skagatá að línu réttvísandi austur frá Fonti á Langanesi, er veiðitímabilið 30. mars – 28. maí.
F: Fyrir Austurlandi, frá línu réttvísandi austur frá Fonti á Langanesi að línu réttvísandi austur frá Hvítingum er veiðitímabilið 30. mars – 28. maí.
G: Fyrir Suðurlandi, frá línu réttvísandi austur frá Hvítingum að línu réttvísandi vestur frá Garðskagavita, skulu veiðileyfishafar velja milli þess að stunda veiðar innan veiðitímabilsins 15. mars – 13. maí eða veiðitímabilsins 15. apríl – 13. júní.

Veiðileyfishöfum er óheimilt að leggja grásleppunet fyrir kl. 08.00 fyrsta dag veiðitímabils. Skylt er að draga öll grásleppunet, sbr. 8. gr. úr sjó fyrir lok veiðitímabils sbr. 1. mgr. þessarar greinar. Óheimilt er að stunda veiðar með rauðmaganetum sbr. 8. gr. frá 15. júní til 31. desember ár hvert.

7. gr.
Sé einn maður á báti, er bannað að eiga fleiri en 100 hrognkelsanet í sjó. Séu tveir menn í áhöfn, skulu ekki fleiri en 200 net í sjó. Aldrei er heimilt að eiga fleiri en 300 net í sjó. Takmörkun þessi á netafjölda miðast við 60 faðma ófellda slöngu. Sé notuð 120 faðma ófelld slanga er heimilt að vera með helmingi færri net í sjó en að framan greinir.

8. gr.
Lágmarksmöskvastærð grásleppuneta, sem heimilt er að nota, er 10,5 þumlungar (267 mm).
Óheimilt er að nota til rauðmagaveiða net með minna en 7 þumlunga (178 mm) möskva og net dýpri en 20 möskva. Þá er óheimilt að nota til rauðmagaveiða net með stærri möskva en 8,5 þumlunga (216 mm). Eftir 1. janúar 2006 er óheimilt að nota til rauðmagaveiða net með stærri möskva en 8 þumlunga (203 mm).

9. gr.
Netabaujur skulu vera á báðum endum netatrossu og skulu allar netabaujur merktar með flaggi, sem komið er fyrir efst á baujustönginni. Flaggið skal auðkennt þannig að séð verði hvaða bátur eigi netið. Skylt er að númera netatrossur sem hver bátur á í sjó frá einum til þess fjölda trossa, sem hann á í sjó. Númer netatrossu skal skáð skýrum tölustöfum á baujuflagg eða belg á báðum endum trossu.

10. gr.
Allir þeir, sem grásleppuveiðar stunda, skulu senda Fiskistofu skýrslur um veiðarnar.

11. gr.
Auk eftirlits Landhelgisgæslu með veiðum og veiðarfærum hafa veiðieftirlitsmenn Fiskistofu eftirlit með, að ákvæðum reglugerðar þessarar sé fylgt og er leyfishöfum skylt að gera þessum aðilum kleift að gera þær athuganir á veiðarfærum, sem þeir telja nauðsynlegar.

12. gr.
Brot gegn ákvæðum reglugerðar þessarar varða refsingu samkvæmt ákvæðum laga nr. 79, 26. maí 1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands. Með mál út af brotum skal farið að hætti opinberra mála. Jafnframt er Fiskistofu heimilt að svipta báta heimild til grásleppuveiða í tiltekinn tíma vegna brota á reglum um grásleppuveiðar, sbr. ákvæði laga nr. 57, 3. júní 1996, um umgengni um nytjastofna sjávar.

13. gr.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt lögum nr. 79, 26. maí 1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands til þess að öðlast þegar gildi og birtist til eftirbreytni öllum þeim, sem hlut eiga að máli. Jafnframt er felld úr gildi reglugerð nr. 129, 12. febrúar 2002, um hrognkelsaveiðar ásamt síðari breytingum.

Sjávarútvegsráðuneytinu, 16. febrúar 2005.

F. h. r.
Vilhjálmur Egilsson.
Jón B. Jónasson.