Krókaaflamarksbátar að nálgast 11 þúsund tonn af ýsu

Það sem af er fiskveiðiári er afli krókaaflamarksbáta í þorski, ýsu og steinbít kominn í 6-5-32 tonn. Það er 0-4-3 tonna meiri afli en var í þessum tegundum á sama tímabili á sl. fiskveiðiári. Af þorski hefur veiðst 3-1-19 tonn, 0-9-10 af ýsu og 3-4-2 tonn af steinbít. Aflinn í steinbít er nánast upp á tonn sá sami og í fyrra, vantar aðeins 10 tonn upp á. Ýsuaflinn hefur aukist um 0-0-2 tonn og þorskurinn um 0-4-1 tonn.
Svo virðist vera að einhver meiri áhugi sé fyrir steinbítnum í ár en í fyrra þar sem nú er búið að veiða 41% af leyfilegum afla, en aðeins þriðjungur hans hafði verið veiddur á þessum tíma í fyrra.

Heimild: Fiskistofa