Klettur stærsta svæðisfélagið innan LS

Á árinu 2004 lönduðu alls 1063 smábátar gegnum greiðslumiðlunarkerfi sjávarútvegsins. Af þeim tilheyrðu 142 svæðisfélaginu Kletti; Ólafsfjörður – Tjörnes. Næst fjölmennasta félagið var Snæfell; Borgarnes – Búðardalur með 140 báta, þriðja stærst var Félag smábátaeigenda á Austurlandi með 108 báta og fjórða stærst var Reykjanes með 107 báta.
Alls eru svæðisfélög LS 15.
Auk þeirra sem hér hafa verið nefnd eru: Smábátafélag Reykjavíkur – 98, Félag smábátaeigenda á Akranesi – 31, Strandveiðifélagið Krókur – 68, Elding, félag smábátaeigenda í Ísafjarðarsýslum – 98, Strandir – 42, Skalli – 46, Fontur – 49, Hrolllaugur – 30, Farsæll – 23, Árborg – 13 og Báran – 68.

Upplýsingar um stjórnir svæðisfélaga LS má sjá á http://www.smabatar.is/sida/5.shtml