Það bar aldeilis vel í veiði hjá áhöfninni á krókaaflamarksbátnum Sæunni Sæmundsdóttur 25. október sl. Báturinn sem gerður er út frá Þorlákshöfn fékk stórlúðu á línuna. Að sögn Þorvaldar Garðarssonar útgerðarmanns og skipstjóra Sæunnar Sæmundsdóttur fékkst lúðan á Selvogsbanka. Mikill hamagangur og átök voru við að koma böndum á lúðuna og ná henni um borð. Eins og sjá má á myndinni er lúðan engin smásmíði, 148 kíló. Með Þorvaldi á sjónum eru synir hans Guðni Þór og Kristján.
Áhugavert
Dagatal LS 2019
Bæklingur LS
NASBO Brochure
Veður
Gæðamál
Hvað þarf mikinn ís til að kæla aflann?
Upprunamerki: Iceland Responsible Fisheries
Virkt skipakort
Landssamband smábátaeigenda
Hverfisgötu 105
101 Reykjavík
Sími: 552 7922
ls@smabatar.is