Málþing um nýliðun og framleiðslugetu þorskstofnsins

Fréttatilkynning frá Hafrannsóknastofnun: „Þorskstofninn er mikilvægasti nytjastofn þjóðarinnar. Skoðanaskipti og umræða um þorskrannsóknir og nýtingu stofnsins eru nauðsynleg og því efnir Hafrannsóknastofnunin, á 40 ára afmælisári sínu, til málþings í samvinnu við sjávarútvegsráðuneytið undir yfirskriftinni: Nýliðun og framleiðslugeta þorskstofnins.

Á þinginu flytja innlendir og erlendir sérfræðingar í þorskrannsóknum erindi um rannsóknir sínar, svara fyrirspurnum og taka þátt í umræðum. Málþingið er liður í þeirri eflingu umræðu um fiskifræðileg málefni, sem Hafrannsóknastofnunin hefur beitt sér fyrir undanfarið – m.a. með reglulegum fundarferðum um landið, greinaskrifum og öflugri upplýsingamiðlun.

Málþingið verður nk. mánudag 7. nóvember á Grand Hótel í Reykjavík og stendur frá kl. 13.00 til 17.15. Allir eru velkomnir.

Dagskrá:
Setning málþings 13-00-13:10
Einar Kristinn Guðfinnsson, sjávarútvegsráðherra

Hrygningarstofn og nýliðun þorsks við Ísland 13-10-13:35
Björn Ævarr Steinarsson, Hafrannsóknastofnunin

Er samband á milli stærðar hrygningarstofns og nýliðunar- 14-35-13:00
þorskstofnar í Norður Atlanshafi
Ransom A. Myers, Dalhousie University, Halifax, Kanada

Fyrirspurnir og umræður 14-00-14:20

Kaffihlé 14-20-14:35

Þorskstofninn við austurströnd Kanada – stærð 15-35-14:00
hrygningarstofns, útbreiðsla og afföll
Michael Sinclair, Bedford Institute of Oceanography,
Kanada

Mikilvægi stofneininga og samsetning hrygningarstofns 15-00-15:25
Guðrún Marteinsdóttir, Háskóli Íslands

Þorskur við Færeyjar – hrygningarstofn og nýliðun 15-25-15:50
S. Hjalti í Jákupsstovu, Fiskirannsóknastovan, Þórshöfn,
Færeyjar

Áhrif veiða á lífssögu þorsks 16-50-15:15
Guðmundur Þórðarson, Hafrannsóknastofnunin

Kaffihlé 16-15-16:30

Umræður og fyrirspurnir 17-30-16:10

Samantekt og fundarslit 17-10-17:20
Jóhann Sigurjónsson, Hafrannsóknastofnunin

Móttaka í boði sjávarútvegsráðherra 17:30

Fundarstjóri: Birna Lárusdóttir, forseti bæjarstj. Ísafjarðarbæjar