Öryggismál sjómanna – fundir á Þórshöfn og Dalvík

Á morgun miðvikudaginn 30. nóvember og fimmtudaginn 1. desember verða haldnir tveir fundir um öryggismál sjómanna.

Á Þórshöfn verður fundurinn haldinn í félagsheimilinu Þórsveri og hefst hann kl 19:00. Sjá nánar: http://www.sigling.is/shared/FileGallery/SharedFiles/Oryggismal/Ymislegt/%DE%F3rsh%F6fn%20A4.pdf

Á Dalvík hefst fundurinn kl 20:00 og fer hann fram í Dalvíkurskóla. Sjá nánar: http://www.sigling.is/shared/FileGallery/SharedFiles/Oryggismal/Ymislegt/Dalv%EDk%20A4.pdf

Sjómenn, útgerðarmenn og aðrir áhugamenn um öryggismál sjófarenda eru hvattir til að fjölmenna á fundina og hlýða á fróðleg erindi og taka þátt í umræðum um öryggismál sjófarenda.