Fiskistofa flutt í Hafnarfjörð

Í morgun opnaði Fiskistofa á nýjum stað. Stofan er nú til húsa í Hafnarfirði, nánar tiltekið að Dalshrauni 1, í nýrri byggingu andspænis versluninni Fjarðarkaup á horni Reykjavíkurvegar, Álftanesvegar og gömlu Reykjanesbrautar sem nú heitir Fjarðarhraun. Meðfylgjandi mynd, sem er tölvuteiknuð, sýnir bygginguna þar sem Fiskistofa er til húsa ásamt annarri starfsemi.stofa_ny_stor.jpg
Símanúmer er hið sama 0-79-569.

Fiskistofa hefur frá stofnun, 1. september 1992, verið til húsa að Ingólfsstræti 1 – Höfn húsi Fiskifélags Íslands. Höfn hefur nú verið selt og hafa nýir eigendur þegar tekið við húsnæðinu. Í húsinu verður starfrækt hótel í framtíðinni.