Sigurjón Þórðarson (F) hefur lagt fram á Alþingi tvær fyrirspurnir um lokanir veiðisvæða. Þingmaðurinn spyr sjávarútvegsráðherra eftirfarandi:
1. Hvaða skyndilokanir veiðisvæða auk reglugerðarlokana voru í gildi árin 2004 og 2005?
2. Eru til athuganir á árangri skyndilokana?
3. Hver er árangur af svæðalokunum sem staðið hafa yfir í langan tíma?
Óskað er eftir skriflegu svari við númer 1 en munnlegu við 2 og 3.