Ný reglugerð um vigtun – markmiðið að lækka kostnað og auka öryggi við skráningu og vigtun

Gefin hefur verið út ný reglugerð um vigtun sjávarafla. Reglugerðin tekur gildi 1. september n.k.
Í fréttatilkynningu sjávarútvegsráðuneytisins segir m.a. að í reglugerðinni séu: „margvísleg nýmæli sem miða fyrst og fremst að því að fella vigtunina betur að vinnslu og viðskiptaferlum í atvinnugreininni. Markmiðið er að lækka kostnað og auka öryggi við skráningu og vigtun.
Helstu nýmælin snúa að auknum sveigjanleika í vigtunaraðferðum og heimilt verður að vigta þorsk, ýsu og ufsa eftir slægingu, þótt fiski hafi verið landað óslægðum.“

Sjá nánar: http://www.sjavarutvegsraduneyti.is/frettir/nr/1160