Guðmundur Lúðvíksson látinn

29. apríl sl. varð bráðkvaddur á Dalvík, Guðmundur Lúðvíksson frá Raufarhöfn. Guðmundur var fæddur 9. janúar 1941.

Guðmundur sat í stjórn LS frá 1996 til dauðadags.2-1828-100.JPG
Hann var fulltrúi Fonts – félags smábátaeigenda Kópasker – Vopnafjörður.

Guðmundur var jarðsunginn frá Raufarhafnarkirkju sl. laugardag.

Guðmundi er hér með þakkað fyrir vel unnin störf í þágu trillukarla.

Eiginkonu Guðmundar, Líneyju Helgadóttur, börnum og öðrum aðstandendum er vottuð samúð.

Minningargreinar um Guðmund birtust í Morgunblaðinu sl. laugardag