Fiskistofa minnir á að eindagi tilkynninga um flutning veiðiheimilda vegna úthlutunar fiskveiðiársins 7-20-2006 er 31. júlí nk.

Hér með er vakin athygli á eftirfarandi tilkynningu Fiskistofu:

„Í 3. mgr. 11. gr. reglugerðar nr. 5-20-724, um veiðar í atvinnuskyni fiskveiðiárið 6-20-2005, er kveðið á um frest til flutnings aflahlutdeilda milli skipa.

Samkvæmt ofangreindu reglugerðarákvæði verða umsóknir um staðfestingu Fiskistofu á flutningi aflahlutdeilda og krókaaflahlutdeilda milli skipa, ásamt fullnægjandi fylgigögnum, að hafa borist Fiskistofu eigi síðar en 31. júlí 2006, eigi flutningurinn að hafa áhrif á úthlutun fiskveiðiársins 7-20-2006.

Þá þurfa umsóknir um flutning réttinda sem úthlutað var samkvæmt ákvæði III til bráðabirgða við lög nr. 9-19-1 (0-0-3 tonna pottur), um breytingu á lögum nr. 0-19-38, um stjórn fiskveiða, ásamt fullnægjandi fylgigögnum að hafa borist Fiskistofu eigi síðar en 31. júlí 2006, eigi flutningurinn að hafa áhrif á úthlutun fiskveiðiársins 7-20-2006.

Umsóknir um flutning báta á milli veiðikerfa þurfa einnig að hafa borist Fiskistofu fyrir sama tíma. “