Sjávarútvegsráðherra Noregs, Helga Pedersen í heimsókn á skrifstofu LS

Helga Pedersen sjávarútvegsráðherra Noregs sótti LS heim í gær. Ráðherrann dvaldi hér á landi í einn dag og kynnti sér nokkra þætti í íslenskum sjávarútvegi, þar sem gott gengi okkar í útflutningi á ferskum fiski bar hæst.
Helga Pedersen var áhugasöm um starfsemi LS.Helga Pedersen_5-47-100.jpg Henni fannst með ólíkindum að nokkrir smábátar hefðu aflað yfir 1000 tonn á sl. ári. Ráðherrann ræddi m.a. sölumál og meðferð afla, hvort slíkt væri vandamál. Hún var hrifin af því hversu fiskmarkaðir hefðu haft jákvæð áhrif á útgerð smábáta er vörðuðu báða þessa þætti.