Snæfell fyrst svæðisfélaga LS að boða til aðalfundar – 1. október

Stjórn Snæfells hefur ákveðið að aðalfundur félagsins verði haldinn á Hótel Framnesi Grundarfirði 1. október nk. Fundurinn hefst kl 16:00 og að venju bíður félagið fundarmönnum upp á veitingar á hótelinu.
Dagskrá fundarins byggist að mestu upp á venjulegum aðalfundarstörfum. Heyrst hefur að formaður félagsinsSímon 8-44-100.jpg Símon Sturluson muni ekki gefa kost á sér til endurkjörs. Eigi það við rök að styðjast liggur fyrir fundinum að kjósa sér nýjan formann.
Á fundinum verða kosnir 5 fulltrúar á 22. aðalfund LS sem fram fer í Reykjavík 26. og 27. október nk.