Í dag stendur Klúbbur matreiðslumeistara fyrir uppistandi í miðborg Reykjavíkur. Vegfarendum verður boðið upp á fiskisúpu sem flyst niður Laugaveginn.
Dagskráin hefst kl 16:00 við veitingahúsið Vín og Skel á Laugavegi 55 b.
Kl 16:20 verður súpan boðin við Hereford Steikhús á Laugavegi 53 b,
kl 16:40 við Caruso í Bankastræti,
kl 16:50 við Lækjarbrekku í Bankastræti,
kl 17:10 við Apótekið í Austurstræti.
Kl 17:20 munu kokkarnir mæta á Lækjartorg og grilla krækling í heysátu og gefa vegfarendum að smakka.
Dagskránni í dag lýkur kl 18:00.