Hrollaugur og Austurland funda í dag og á morgun

Aðalfundur Hrollaugs – félags smábátaeigenda á Hornafirði verður í kvöld. Fundurinn verður á Kaffihorninu og hefst kl 21:00.
Formaður Hrollaugs er Snorri Aðalsteinsson.SnorriDSCF2-1-0042.jpg

Á morgun fimmtudaginn 28. september heldur Félag smábátaeigenda á Austurlandi sinn aðalfund. Fundurinn verður á Hótel Reyðarfirði og hefst kl 14:00.

Formaður Félags smábátaeigenda á Austurlandi er Gunnar Hjaltason á Reyðarfirði.Gunnar Hjalta0-18-100.jpg

Félagsmenn beggja félaganna eru hvattir til að fjölmenna og taka þátt í umræðum og hafa þannig áhrif á það sem fundirnir senda frá sér.

Framkvæmdastjóri LS munu mæta á báða fundina.