Stykkishólmur – bæjarráð tekur undir ályktun Snæfells

Ekkert lát er á stuðningsyfirlýsingum við samþykkt Snæfells gegn flottrollsveiðum á síld við Snæfellsnes. Í gær samþykkti bæjarráð Stykkishólms samhljóða eftirfarandi:

„Lagt er til að bæjarráð taki undir með Snæfelli, félagi smábátaeigenda á Snæfellsnesi varðandi mikilvægi þess að viðhafa skynsamlega umgengni, nýtingu og virðingu á grunnslóðinni og þá sérstaklega á Breiðafirði.“

Stykkisholmshofn 3-0-05.jpg