Í dag föstudaginn 23. mars fer fram frá Ísafjarðarkirkju útför Eiríks M. Þórðarsonar. Athöfnin hefst kl. 14:00. Eiríkur fórst ásamt Unnari Rafni Jóhannssyni er Björgu Hauks ÍS hvolfdi í mynni Ísafjarðardjúps 13. mars sl.
Vinir Eiríks hafa hrint af stað söfnun til styrktar eftirlifandi sambýliskonu hans Pálínu Þórarinsdóttur og fjölskyldu. Söfnunarreikningurinn er hjá Glitni á Ísafirði og númer 603900-14-0556, kt. 9-34-060951
Myndin sem fylgir þessari frétt er af Eiríki við þau störf sem hann unni. Hann var sjómaður í húð og hár og allir sem þekktu hann vissu að hvergi unni hann sér betur en á og við sjóinn.
Landssamband smábátaeigenda vottar aðstandendum hinna látnu dýpstu samúðar.
LS þakkar Eiríki störf hans í þágu trillukarla.