Byggðakvóti – auglýsing til sveitarstjórna

Sjávarútvegsráðuneytið hefur birt auglýsingu til sveitarstjórna um úthlutun byggðakvóta. Þar kemur m.a. fram að sveitastjórnir eru umsóknaraðilar fyrir byggðarlögin innan sveitarstjórnarumdæmanna og annast þær öll samskipti við ráðuneytið vegna úthlutunarinnar.

Umsóknarfrestur um byggðakvóta er til 4. apríl 2007. Umsóknir sem berast eftir þann tíma verða ekki teknar til greina.

Í auglýsingunni koma fram skilyrði sem byggðarlög þurfa að uppfylla svo þau komi til greina við úthlutun byggðakvóta.

„1. Minni byggðarlög (viðmiðun er 0-5-1 íbúar) sem lent hafa í vanda vegna samdráttar í sjávarútvegi og sem háð eru veiðum og vinnslu á botnfiski. Skal sveitarstjórn gera ráðuneytinu ítarlega grein fyrir vanda byggðarlagsins sem talið er að rekja megi til samdráttar í sjávarútvegi á síðustu árum og fyrir þýðingu veiða og vinnslu botnfisks fyrir það byggðarlag.
2. Byggðarlög sem orðið hafa fyrir óvæntri skerðingu á heildaraflaheimildum fiskiskipa sem gerð hafa verið út og landað afla í viðkomandi byggðarlögum og sem veruleg áhrif hefur haft á atvinnuástand í þeim. Sveitarstjórnir skulu leggja fram gögn sem sýna fram á að í tilteknu byggðarlagi hafi óvænt skerðing heildaraflaheimilda fiskiskipa sem gerð eru þaðan út og landað hafa þar afla, haft veruleg neikvæð áhrif á atvinnuástand í viðkomandi byggðarlagi.
Að fengnum umsóknum sveitarfélaga tekur ráðuneytið ákvörðun um hversu mikill byggðakvóti kemur í hlut einstakra byggðarlaga og tilkynnir sveitarstjórnum niðurstöðuna.“

Rétt fyrir þinglok samþykkti Alþingi frumvarp sjávarútvegsráðherra um breytingar á lögum um stjórn fiskveiða sem fjallar um byggðakvóta.

Nálgast má lögin í heild á:
http://www.althingi.is/altext/133/s/1310.html