Smábátafélag Reykjaness skorar á sjávarútvegsráðherra að framlengja friðun við Reykjanes

Smábátafélag Reykjaness hefur í dag sent sjávarútvegsráðherra eftirfarandi erindi:

„Á miðnætti verður togurum styttri en 42 m með aflvísi lægri en 2500 heimilaðar veiðar upp að 4 sjómílum frá Sandgerði. Svæðið afmarkast af línu réttvísandi vestur frá Sandgerðisvita að 23°42´V og að norðan af 64°20´N, sbr. reglugerð 5-20-940. Sérstaða svæðisins er mikil því það er hið eina á veiðislóð smábáta utan 4 sjómílna sem er friðað fyrir togveiðum og skilgreint í reglugerð sem sérstakt neta- og línusvæði. Friðunin nær nú aðeins til hluta úr ári það er 5. nóvember til og með 30. apríl.
Hér með er skorað á yður að framlengja bann við veiðum með botndregnum veiðarfærum á nefndu svæði.

Svæðið er öflugt hrygningarsvæði og því rík ástæða til að hlífa því fyrir botndregnum veiðarfærum. Í dag er enn meiri ástæða til að fara varlega, þar sem Hafrannsóknastofnun álítur nánast alla árganga frá og með 2001 lélega. Nú gæti hins vegar orðið viðsnúningur þar sem mikið magn loðnu gekk yfir svæðið sem eykur möguleika þess að hrygning gangi vel. Við smábátaeigendur sem gerum út frá Suðurnesjum teljum afar brýnt að framlengja bann við togveiðum á þessu sérstaka línu- og netasvæði.

Fyrir réttu ári, 5. maí 2006, fimm dögum eftir að togurum var hleypt inn á svæðið ritaði stjórn Reykjaness þér bréf um þetta málefni. Þar sagði m.a.:
„Á öllum stigum málsins hafa fulltrúar Reykjaness lagt áherslu á að sú verndun sem fælist í „hrygningarstoppi“ færi forgörðum ef heimilað yrði að trolla yfir hið mikilvæga hrygningarsvæði frá og með 1. maí. Frá þeim degi hafa 22 togarar trollað þvers og kruss á svæðinu og valdið gríðarlegri eyðileggingu.“
Því sem hér er lýst vilja línu- og netaveiðimenn á Reykjanesi ekki þurfa að upplifa nú ári síðar.

Í langan tíma (í árum talið) hefur Smábátafélag Reykjaness sent vel rökstutt erindi til sjávarútvegsráðuneytisins þess efnis að línusvæðið verði heilsárssvæði. Hér með er það ítrekað. Miklum völdum fylgir mikil ábyrgð sem ástæða er til að hafa í huga þegar ákvörðun er tekin sem gæti skipt sköpum varðandi nýliðun 2007 árgangs þorsksins.

Að lokum fer Smábátafélag Reykjaness fram á að þessu mikilvæga erindi félagsins verði svarað, en á það hefur skort 100% til þessa.“

Undir bréfið ritar formaður Reykjaness, Halldór Ármannsson.