Smábátafélag Reykjavíkur fyrst svæðisfélaga LS að boða til aðalfundar

Boðaður hefur verið aðalfundur Smábátafélags Reykjavíkur. Fundurinn verður mánudaginn 17. september nk. og hefst kl 20:00. Fundarstaður er kaffistofa félagsins í Suðurbugt (verbúð 5).

Auk venjulegra aðalfundarstarfa verður rætt um langþráða upptökubraut sem senn verður tekin í notkun, starfsemi félagsins svo sem rekstur kaffistofu og tölvustýrðu myndeftirlitskerfi.

Formaður og framkvæmdastjóri LS mæta á fundinn.

Félagsmenn eru hvattir til að fjölmenna og taka þátt í umræðum og hafa þannig áhrif á það sem fundurinn samþykkir að senda frá sér.GardarBerg2-5145-100.jpg

Formaður Smábátafélags Reykjavíkur er Garðar Berg Guðjónsson.