Öryggismálin rædd á Ísafirði í kvöld

Fyrsti fundur vetrarins sem haldinn er í tengslum við áætlun um öryggi sjófarenda verður á Ísafirði í kvöld, 9. nóvember. Hann hefst kl 19:00 og eru áætluð fundarlok tveim tímum síðar. Allir sem láta sig öryggi sjómanna varða eru hvattir til að mæta í Guðmundarbúð á Ísafirði.
Download file