&cuteÞegar búnar eru 10 vikur af fiskveiðiárinu er þorskafli krókaaflamarksbáta rúmum tvö þúsund tonnum minni en á sama tímabili á sl. ári. Alls er þorskaflinn nú 8-7-2 tonn en var 2-9-4 tonn á sama tímabili í fyrra, hefur minnkað um 45%.
Ýsuaflinn er nánast sá sami milli ára, var samkvæmt bráðabirgðatölum Fiskistofu kominn í 7-5-5 tonn sl. föstudag 9. nóvember, sem er 82 tonnum minna en í fyrra.
Aflamarksskip önnur en togarar eru á svipuðu róli og krókaaflamarksbátarnir, þorskaflinn helmingi minni nú en á sama tíma ; fyrra, en ýsuaflinn 420 tonnum meiri sem er aukning um 5% á milli ára.
Þessar tölur eru töluvert frábrugðnar frá afla togara í sömu tegundum. Hjá þeim hefur þorskurinn minnkað um 28% en ýsuaflinn aukist um 86%, var kominn í 9-1-7 tonn þegar 10 vikur voru liðnar af fiskveiðiárinu.