Kjarasamningar – Félag smábátaeigenda á Austurlandi og Klettur boða fundi

Kjarasamningur LS og sjómannasamtakanna er nú til umræðu hjá smábátaeigendum um land allt. Nú hafa fleiri félög tilkynnt um fundi.

Félag smábátaeigenda á Austurlandi hefur ákveðið að boða félagsmenn sína til fundar nk. laugardag 19. janúar. Fundurinn verður haldinn á Hótel Héraði á Egilsstöðum og hefst kl 13:00.

Klettur – félag smábátaeigenda á Norðurlandi eystra – heldur sinn fund eftir viku – sunnudaginn 20. janúar. Fundurinn verður nánar auglýstur síðar auk þess sem félagsmönnum mun berast skriflegt fundarboð í vikunni.