Í gærkveldi hélt Elding, félag smábátaeigenda í Ísafjarðarsýslum, fund um kjarasamningana. Góð mæting var á fundinn og umræður fjörugar um kjarasamninginn, sem og ástand mála í kjölfar niðurskurðar í þorskveiðiheimildum.
Elding fylgdi fordæmi þeirra 10 svæðisfélaga sem nú þegar hafa fundað um kjarasamningana og felldi hann með öllum greiddum atkvæðum.
Að því loknu urðu talsverðar umræður um almennt ástand mála í sjávarútveginum á Vestfjörðum í kjölfar niðurskurðar þorskveiðiheimilda, m.a. í ljósi álits Mannréttindanefndar Sameinuðu þjóðanna.
Eitt af því sem fram kom kristallar vandamál sem nágrannaþjóðir okkar glíma við – burtséð frá því hvaða fiskveiðikerfi er við lýði – þ.e. flótti unga fólksins úr minni byggðarlögum til höfuðborgarsvæða.
Fundurinn minnti sérstaklega á tillögur að sjálfstæðu háskólasetri á Vestfjörðum varðandi hafrannsóknir.