Eins og greint var hér frá í gær vill Thorbjörn Jacobsen sjávarútvegsráðherra Færeyja skerða veiðidaga um helming vegna bágs ástands veiðistofna við eyjarnar.
Tillaga sjávarútvegsráðherra er nú rædd á Lögþinginu og öðlast ekki gildi fyrr en hún hefur verið samþykkt eftir þriðju umræðu.
Að sögn Auðuns Konráðssonar formanns Meginfelags Útróðrarmanna hefur tillaga ráðherrans mætt mikilli andstöðu þingheims. Hagsmunaaðilar allir sem einn beita miklum þrýstingi gegn tillögunni og nú þegar liggur fyrir að helmingur þingheims styður ekki tillögu Thorbjörns Jacobsens.
Á færeyska þinginu sitja 32 þingmenn, þar sem stjórnarflokkarnir hafa 17 þingmenn en stjórnarandstaðan 15.
Það vekur athygli sjómanna í Færeyjum að þrátt fyrir að Hafrannsóknastofnun þeirra mæli nú hrygningastofninn þann minnsta í sögu mælinga þar, að þá skuli stofnunin mæla seiðavísitölu sem frá stofninum kemur vel fyrir ofan meðallag.
Mynd: Auðunn Konráðsson