Aðalfundur Snæfells 2008

Í gær, 14. september, var haldinn aðalfundur Snæfells félags smábátaeigenda á Snæfellsnesi. Fundurinn var á Hótel Framnesi Grundarfirði og var mæting mjög góð.

Fjölmörg málefni komu til umræðu og var fundarmönnum heitt í hamsi þegar rædd var ákvörðun stjórnvalda að auka ekki þorskkvótann. Töldu fundarmenn það miður að þau tækju ekki tillit til sjónarmiða sjó- og útgerðarmanna.

Ekki var síður fjörug umræðan um byggðakvótann. Úthlutun hans var gagnrýnd og ályktun samþykkt um að leggja hann af.Snaefell 5-98-2008100.jpg

Fram kom á fundinum að viðræður um gerð kjarasamnings milli LS og sjómannasamtakanna mundu hefjast að nýju nú í september. Einnig að stjórn LS hefði samþykkt samning um launakjör beitningamanna þar sem viðsemjandinn hefði verið Starfsgreinasambandið.

Þá var á fundinum samþykkt að óska eftir að lögum um greiðslumiðlun innan sjávarútvegsins yrði breytt. Afnema bæri miðlun til lífeyrissjóðs og tryggingamála.

Samþykktum fundarins verður gerð skil síðar.

Stjórn Snæfells skipa eftirtaldir:

Alexander Friðþjófur Kristinsson formaður
Jóhann Rúnar Kristinsson gjaldkeri
Gestur Hólm Kristinsson ritari
Heiðar Magnússon
Bárður Guðmundsson

Mynd fv.:
Gestur Hólm Kristinsson, Örvar Marteinsson, Bárður Guðmundsson, Alexander F. Kristinsson, Jóhann Rúnar Kristinsson og Heiðar Magnússon.