Fontur – aðalfundur á morgun 7. október, kl 13:00


Aðalfundur Fonts – félags smábátaeigenda á
Norðausturlandi – verður haldinn á morgun þriðjudag 7. október. 

Fundarstaður er Hótel Norðurljós á Raufarhöfn.   

Fundurinn hefst kl 13:00.


Félagar eru hvattir til að fjölmenna á fundinn.


Gestir fundarins verða:

Örn Pálsson framkvæmdastjóri LS

og

fulltrúi frá BioPol á Skagaströnd sem segir frá verkefninu 

„Merkingu hrognkelsa“ sem hófst í vor og stendur enn yfir.

 


Formaður Fonts er Haraldur
Sigurðsson, Kópaskeri.
,

Fontur bregst við áliti mannréttindanefndar SÞ