Trefjar ehf buðu til stórveislu sl. miðvikudag 12. nóvember
í tilefni þess að 30 ár eru liðin frá stofnun fyrirtækisins. Auk þess að fagna þeim tímamótum var
tilefnið að lokið var smíði á fyrsta skipinu í nýrri skipasmíðastöð Trefja við
Óseyrarbraut 29 í Hafnarfirði.
Skipasmíðastöðin er öll hin glæsilegasta og bregður
viðskiptavinum örugglega í brún þegar þeir koma í hið nýja húsnæði. Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra
Einar Kristinn Guðfinnsson klippti á borða af þessu tilefni og flutti
ávarp. Meðal þess sem ráðherrann
sagði var að glæsileg skipasmíðastöð væri ótvíræður vitnisburður um hina öflugu
smábátaútgerð á Íslandi sem væri einsdæmi í heiminum.
Landssamband smábátaeigenda óskar eigendum Trefja ehf,
Auðunni Óskarssyni og fjölskyldu og starfsfólki til hamingju með glæstan
árangur í 30 ára starfsemi fyrirtækisins og velgengni um alla framtíð.